Fólksfjöldi

Fólksfjöldi á starfssvæði

Fjöldi, kynjaskipting og stærstu sveitarfélög

Í desember 2003 voru íbúar Austurlands 11.889, eða um 4,1 prósent af heildarfjölda á Íslandi. Alls voru 525 fleiri karlmenn en konur eða um 8 prósentum fleiri. Á sama tíma var íbúafjöldi Mið-Austurlands 8.959 sem samsvarar 3 prósentum af heildarfjölda á Íslandi. Karlmenn þar voru einnig 8 prósentum fjölmennari, eða 369 fleiri en konurnar. Stærstu sveitarfélögin á Mið-Austurlandi eru Fjarðabyggð (Eskifjörður, Reyðarfjörður og Norðfjörður), Egilsstaðir, Seyðisfjörður og Austurbyggð (Fáskrúðsfjörður og Stöðvarfjörður). Alls bjuggu 1.139 manns í Breiðdalsvík, Vopnafirði og á Borgarfirði eystri.