Menning og afþreying
Menning og afþreying
Í flestum sveitarfélögum er hægt að finna félagsheimili, íþróttamiðstöðvar, sundlaugar og aðra aðstöðu sem er ætluð til menningar- og afþreyingarstarfsemi. Fjölmargir möguleikar eru einnig til útivistar, t.d. skíði, fjallgöngur, fluguveiði, skotveiði, hestaferðir, berjatínsla og golf, svo eitthvað sé nefnt.
Menningarlíf á Austurlandi er blómlegt og byggir á kröftugu grasrótarstarfi. Þar er hægt að finna leikfélög, kóra, hljómsveitir og ýmsa aðra félagastarfsemi. Atvinnulistamenn heimsækja svæðið og bjóða upp á sýningar og ber þar hæst árlega alþjóðlega jazzhátíð á Egilsstöðum. Átta eða níu prestar þjóðkirkjunnar starfa á svæðinu og þjónar hver þeirra einni til þremur kirkjum.