Menntun

Menntun

Grunnur íslenska menntakerfisins byggir á því að allir eigi að hafa jafnan rétt til náms óháð kyni, efnahag, búsetu, trú, hugsanlegri fötlun og menningarlegum eða félagslegum bakgrunni.
 
Alþingi hefur falið menntamálaráðuneyti þá ábyrgð á skólakerfinu og sér ráðuneytið um að marka stefnu og móta ramma fyrir skólastarfið. Rekstur grunnskóla var færður til sveitarfélaga árið 1996 og eru sveitarfélög því ábyrg fyrir því að tryggja öllum aðgang að leikskólum og grunnskólum og bera einnig fjárhagslega ábyrgð á rekstri skólanna. Ríkið sér hins vegar um rekstur framhaldsskóla. Alls eru þrír framhaldsskólar á Austurlandi, þar af einn á Egilsstöðum og einn í Fjarðabyggð (Neskaupstað). Enginn háskóli er á Austurlandi og áður fyrr þurfti að flytja til Reykjavíkur, Akureyrar eða leita út fyrir landsteinana til að afla sér háskólamenntunar. Á síðustu árum hefur þetta þó breyst með fleiri möguleikum í fjarnámi.