Samgöngur
Samgöngur
Vegagerðin hefur útbú á Reyðarfirði og ber ábyrgð á vegaframkvæmdum og viðhaldi vega á Austurlandi. Flugvöllur svæðisins er staðsettur á Egilsstöðum og er áætlunarflug þaðan nokkrum sinnum á dag til og frá Reykjavík. Egilsstaðaflugvöllur er einnig skilgreindur sem alþjóðlegur flugvöllur. Á Neskaupstað, í Fáskrúðsfirði, Breiðdalsvík og Borgarfirði eru litlar flugbrautir sem hægt er að nota í neyðartilvikum. Tvö rútufyrirtæki eru á Austurlandi sem bjóða áætlunarferðir milli Norðfjarðar og Reyðarfjarðar og flytja í flug farþega frá Fjarðabyggð, Breiðdalsvík og Austurbyggð.
