Framkvæmdir

Saga og bakgrunnur


Valgerður Sverrisdóttir, þáverandi iðnaðarráðherra, G. John Pizzey, aðstoðarforstjóri Alcoa Inc. og Friðrik Sophusson, þáverandi forstjóri Landsvirkjunar, undirrituðu 19. júlí 2002 viljayfirlýsingu um framhald viðræðna um „mat og hugsanlega framkvæmd á stóriðjuverkefni sem tekur til byggingar álvers á Austurlandi.“ Viljayfirlýsingin var undirrituð við athöfn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið sendi frá sér fréttatilkynningu um málið og þar var fyrst skilgreining á verkefninu sem yfirlýsingin fjallaði um:

Kárahnjúkavirkjun sem byggð verður á vegum Landsvirkjunar.  

  1. Bygging álvers í Reyðarfirði á vegum Alcoa.
  2. Lóð fyrir álver á eignarlandi ríkisins við Reyðarfjörð.
  3. Hafnaraðstaða á Mjóeyri sem Fjarðabyggð leggur til og hafnarsjóður sveitarfélagsins byggir og rekur.
  4. Önnur tengd aðstaða.


Framkvæmdir

Að loknu víðtæku samráðsferli og lögbundnu mati á umhverfisáhrifum var bygging Fjarðaáls á 322.000 tonna álveri við Reyðarfjörð samþykkt. Fjarðaál er fyrsta álverið sem Alcoa reisir í 20 ár.

Landsvirkjun og Alcoa undirrituðu orkusamning 13. desember 2002.

Lögin sem samþykkt voru á Alþingi þann 5. mars 2003 gáfu Alcoa og hlutaðeigandi aðilum heimild til þess að ganga frá samningum vegna verkefnisins. Verkefnið felur einnig í sér að Landsvirkjun reisi 500 MW vatnsaflsvirkjun og að Hafnarsjóður Fjarðabyggðar reisi höfn. Þá yrði einnig ráðist í umfangsmiklar bætur á samgöngumannvirkjum og breytingar á innviðum samfélagsins á Austurlandi.

Um Alcoa
Alcoa er leiðandi í heiminum í framleiðslu súráls, hrááls og unnins áls og tekur virkan þátt á öllum sviðum áliðnaðarins. Viðskiptavinir Alcoa starfa m.a. að flugvéla-, bíla-, umbúðaframleiðslu og í byggingariðnaði. Með fjölbreytileika Alcoa er fyrirtækinu kleift að sameina þekkingu á hönnun, verkfræði og framleiðslu á einum stað og færa viðskiptavinum sínum. Alcoa framleiðir einnig neytendavörur á borð við Reynolds álumbúðir (Reynolds Wrap), Alcoa felgur (Alcoa Wheels) og Baco álpappír (Baco Household Wraps). Þá framleiðir fyrirtækið klæðningar utan á hús, stálsteypumót og rafkerfi í bíla. Starfsmenn Alcoa eru 127.000 og nær starfsemi fyrirtækisins til 38 landa.

Um Landsvirkjun
Stofnun Landsvirkjunar árið 1965 má rekja til þess að íslensk stjórnvöld höfðu hug á að nýta orkulindir landsins betur með því að draga að erlenda fjárfesta í orkufrekan iðnað innanlands.

Frá 1965 hefur Landsvirkjun byggt upp raforkukerfið af eigin rammleik og uppsett afl í raforkukerfi fyrirtækisins hefur vaxið frá um 90 MW í 1.212 og verður um 1900 MW eftir tilkomu Kárahnjúkavirkjunar. Á sama tíma hefur raforkuverð á almennum markaði farið lækkandi að raunvirði og sala á raforku til orkufreks iðnaðar sem fram fór í erlendri mynt vaxið, svo að um 65% framleiðslu er seld stóriðju. Þá eru gæði og afhendingaröryggi raforkukerfis Landsvirkjunar orðin með því besta sem þekkist í heiminum.

Miklar breytingar áttu sér stað með setningu nýrra raforkulaga árið 2005 sem fela í sér markaðsvæðingu raforkugeirans. Stærsta breytingin var sú að frá 1. janúar 2005 varð flutningssvið fyrirtækisins, þar sem störfuðu tæplega 70 manns, að Landsneti, sjálfstæðu hlutafélagi og dótturfélagi Landsvirkjunar. Landsnet á og rekur flutningskerfi landsins og stýrir raforkukerfinu.

Frá og með 1. janúar 2007 yfirtók ríkið eignarhlut Reykjavíkur og Akureyrar í Landsvirkjun, sem varð þar með sameignarfélag í fullri eign ríkisins og á forræði fjármálaráðuneytisins.

Samningur um framkvæmdir

Þann 15. mars 2003 voru samningar um framkvæmdir (lóðarsamningur, orkusamningur og hafnarsamningur) undirritaðir við hátíðlega athöfn á Reyðarfirði.