Saga og bakgrunnur

Saga og bakgrunnur

Valgerður Sverrisdóttir, þáverandi iðnaðarráðherra, G. John Pizzey, aðstoðarforstjóri Alcoa Inc. og Friðrik Sophusson, þáverandi forstjóri Landsvirkjunar, undirrituðu 19. júlí 2002 viljayfirlýsingu um framhald viðræðna um „mat og hugsanlega framkvæmd á stóriðjuverkefni sem tekur til byggingar álvers á Austurlandi.“ Viljayfirlýsingin var undirrituð við athöfn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið sendi frá sér fréttatilkynningu um málið og þar var fyrst skilgreining á verkefninu sem yfirlýsingin fjallaði um:

1. Kárahnjúkavirkjun sem byggð verður á vegum Landsvirkjunar.

2. Bygging álvers í Reyðarfirði á vegum Alcoa.

3. Lóð fyrir álver á eignarlandi ríkisins við Reyðarfjörð.

4. Hafnaraðstaða á Mjóeyri sem Fjarðabyggð leggur til og hafnarsjóður sveitarfélagsins byggir og rekur.

5. Önnur tengd aðstaða.