Efnahagsvísar
Árið 2011 nam nettó útflutningur Fjarðaáls 5,3% af árlegum útflutningi frá Íslandi. Viðskiptavinir Alcoa starfa meðal annars í flugvéla-, bíla-, umbúðarframleiðslu og í byggingariðnaði. Viðskipti Fjarðaáls við íslenska aðila námu um 33 milljörðum króna á árinu 2011. Af þessu má leiða að áhrif álframleiðslunnar geta haft umtalsverð áhrif á útflutning og vöruskiptajöfnuð Íslendinga.Framleiðslugeta álversins á Reyðarfirði er um 360.000 tonn af áli á ári og tæplega 500 manns vinna hjá Fjarðaáli. Álverið á Reiðarfirði fær orku sína frá Fljótsdalsstöð sem er öflugasta vatnsaflstöð Íslands og er afl hennar 690 MW.
Með því að smella hér má lesa um efnahagsvísa
