Breytingar í fjórða áfanga
Eftirtaldar breytingar urðu á vísum og mælikvörðum þegar upplýsingum var safnað fyrir árið 2005, sem telst fyrsta árið í fjórða áfanga:
- Vísir 7.2 ii)
Niðurstöður samræmdra prófa í framhaldsskólum á Austurlandi og á landsvísu
o Breyting:
Mælikvarði felldur niður.
o Ástæða breytingar:
Árið 2006 ákvað menntamálaráðherra að fella niður samræmd stúdentspróf í framhaldsskólum. Vegna þessa er mælikvarðinn felldur niður.
· Vísir 14.1
Virðisauki við þjóðarframleiðslu
Mælikvarði: Virðisauki, í íslenskum krónum, sem framkvæmdir skapa á Íslandi vegna launa, opinberra gjalda, kaupa á aðföngum og vergs hagnaðar innlendra aðila.
o Breyting:
Heiti vísis breytt í „Efnahagslegur ábati við þjóðarframleiðslu“
Mælikvarða breytt í: „Efnahagslegur ábati, í íslenskum krónum, sem umsvif Fjarðaáls og Landsvirkjunar skapa á Íslandi í tengslum við framkvæmdirnar vegna launa, opinberra gjalda og kaupa á aðföngum (vöru og þjónustu).“
o Ástæða breytingar:
Ekki varið talið raunhæft að hægt væri að útvega úr bókhaldskerfum fyrirtækjanna upplýsingum fyrir síðasta liðinn (vergur hagnaður innlendra aðila). Vísi og mælikvarða því breytt til samræmis.
· Vísir 15.1 i)
Tekjur af framkvæmdum sem hlutfall af heildartekjum sveitarfélaga.
o Breyting:
Mælikvarða breytt í „Breytingar á útsvarstekjum í völdum sveitarfélögum.“
o Ástæða:
Ekki reyndist möguleiki að afla upplýsinga hjá sveitarfélögum fyrir þann mælikvarða sem fyrir var en upplýsingar um útsvar er hægt að nálgast í árbókum sveitarfélaga sem veita fróðlegar upplýsingar um áhrif framkvæmda á tekjustofna sveitarfélaga.
Breytt númer vísa
Í fjórða áfanga verkefnisins var ákveðið að breyta númerum vísa Sjálfbærniverkefnisins. Var það gert vegna þeirra athugasemda sem komu fram við nytsemisúttekt fyrirtækisins Sjá ehf, þar sem kom fram að erfitt væri að átta sig á röðun vísanna.
Vísarnir voru flokkaðir á grundvelli þriggja stoða sjálfbærrar þróunar; samfélag, umhverfi og efnahagur og byggir númeraröðunin á þessari flokkun. Í listanum hér að neðan má sjá þær breytingar sem gerðar hafa verið:
