Vísir 3.1 - Ferðaþjónusta
Árangur

a. Hlutfall starfa í hótel- og veitingarekstri á Austurlandi og á Íslandi
Eins og sést á meðfylgjandi mynd hefur hlutfall starfa í hótel- og veitingarekstri verði heldur lægra en á landsvísu. Ekki er hægt að greina neina sérstaka breytingu í þeim efnum, hvorki til hækkunar né lækkunar, á þeim tímapunkti sem byggingarframkvæmdir hefjast árið 2003. Örlítil hækkun var á hlutfalli starfa í hótel- og veitingarekstri á Austurlandi á milli árana 2004 og 2005. Nýrri tölur, um fjölda starfandi í hótel- og veitingarekstri, en 2005 eru ekki fáanlegar hjá Hagstofu Íslands. Unnið er að lausn við öflun sambærilegra upplýsinga frá árinu 2006 og til framtíðar.
Hlutfall starfa í hótel- og veitingarekstri á Austurlandi miðað við landið allt og Norðurland-eystra.Nýrri tölur, um fjölda starfandi í hótel- og veitingarekstri, en 2005 eru ekki fáanlegar hjá Hagstofu Íslands. Smellið hér til að sjá stærri mynd.
Heimild: Hagstofa Íslands, 2009.
b. Fjöldi gistinátta í hótelum/gistiheimilum á ári á Austurlandi
Meðfylgjandi línurit sýnir fjölgun gistinátta á Austurlandi árin 2000 - 2010. Á því sést að gistinóttum hefur fjölgað um rúm 40% á umræddu tímabili, eða frá 94.196 í 157.972.
Smelltu á myndina til að sjá stærri útgáfu af henni.
Tölur fyrir gistinætur á hótelum/gistiheimilum eru ekki komnar fyrir árið 2011 frá Hagstofu Íslands. Meðfylgjandi mynd sýnir eingöngu gistinætur á hótelum á Austurlandi frá 2000-2011.
Smelltu á myndina til að sjá stærri útgáfu af henni.
Heimild: Hagstofa Íslands, 2011.
Uppfært 28.03.12
c. Fjöldi farþega í flugi til og frá Egilsstöðum
Mjög greinileg fjölgun hefur orðið á flugi til og frá Egilstaða frá árinu 2003 en meðfylgjandi línurit sýnir þróun í fjölda flugfarþega um Egilsstaðaflugvöll á árunum 2003-2010. Farþegum fjölgar jafnt og þétt og nær hámarki árið 2007 þegar tæp 160.000 farþegar fara um flögvöllinn. Þeim fækkar svo eftir 2007 þegar framkvæmdir náðu hámarki, en þó fara um 5.000 fleiri farþegar um flugvöllinn árið 2010 en árið 2003.
Smelltu á myndina til að sjá stærri útgáfu af henni.
Heimild: Hagstofa Íslands, 2011.
Tölur fyrir 2011 eru ekki komnar frá Hagstofu Íslands. Uppfært verður um leið og unnt er.
d. Fjöldi heimsókna til Fjarðaáls og í Fljótsdalsstöð
Hér til hliðar má sjá þróun í fjölda heimsókna til Fjarðaáls og í Fljótsdalsstöð. Landsvirkjun er með gestastofu fyrir Kárahnjúkavirkjun og Fljótsdalsstöð í Végarði og áður en álverið hóf starfsemi sína var Alcoa Fjarðaál með gestastofu skammt frá álverslóðinni. Árið 2006 var hápunkti heimsókna í Fljótsdalsstöð og álver náð, en í heild heimsóttu 18.309 manns álver og virkjun eða 15.734 virkjun og 2.575 álver. Á árinu 2010 heimsóttu 7.282 manns virkjun og álver, eða 5.405 virkjun og 1.877 álver.
Smelltu á myndina til að sjá stærri útgáfu af henni.
Uppfært 1.3.12
Vöktunaráætlun og markmið
Hvað er mælt?
a. Hlutfall starfa í hótel- og veitingarekstri á Austurlandi og á Íslandi (áhrif framkvæmda: afleidd).
b. Fjöldi gistinátta í hótelum/gistiheimilum á ári á Austurlandi (áhrif framkvæmda: afleidd).
c. Fjöldi farþega í flugi til og frá Egilsstöðum (áhrif framkvæmda: afleidd).
d. Fjöldi heimsókna til Fjarðaáls og í Fljótsdalsstöð (áhrif framkvæmda: bein).
Vöktun
a. Upplýsingum verður aflað á vefsíðu Hagstofunnar, sem safnar þeim ársfjórðungslega.
b. Upplýsingum verður aflað á vefsíðu Hagstofunnar, sem safnar þeim ársfjórðungslega.
c. Upplýsingum verður aflað árlega hjá Flugfélagi Íslands.
d. Landsvirkjun og Fjarðaáli fylgjast með fjölda gesta á virkjunarsvæði og í álver og safna upplýsingum jafnóðum.
Markmið
a. Hlutfall starfa í ferðaþjónustu á Austurlandi hærra eða jafnt hlutfalli á landsvísu.
b. Aukning í fjölda gistinátta á Austurlandi hlutfallslega meiri eða jöfn aukningu á landsvísu.
c. Fjölgun farþega miðað við grunnástand.
d. Fjöldi heimsókna í Fjarðaál og Fljótsdalsstöð og á Kárahnjúkasæðið eykst eftir að jafnvægi hefur verið náð eftir hápunkt í upphafi.
Forsendur fyrir vali
Fjöldi ferðamanna heimsækir Austurland til að upplifa náttúru svæðisins, fossa, landslag og sérstæð náttúrufyrirbæri.
Tilkoma Fjarðaáls og Fljótsdalsstöðvar geta haft áhrif á ferðaþjónustu á svæðinu. Ferðamönnum gæti fjölgað vegna áhuga á framkvæmdum, auðveldara aðgengi að svæðum og fleiri viðskiptatengdum ferðum.
En umhverfisáhrif virkjunar gætu einnig haft þau áhrif að einhverjum ferðamönnum kann að þykja svæðið síður áhugavert en áður. Ferðamenn geta komist til Austurlands á bíl, með rútu eða flugvél.
Flugvöllur er á Egilsstöðum, sem jafnframt er varaflugvöllur fyrir alþjóðaflug, og frá Egilsstöðum eru góðar vegatengingar við flest svæði á Austurlandi.
