Vísir 3.2 - Útflutningur Fjarðaáls
Gert er ráð fyrir að Fjarðaál framleiði árlega 346 þúsund tonn af áli til útflutnings. Áhrif álframleiðslunnar á útflutning frá Íslandi og vöruskiptajöfnuð landsins geta orðið umtalsverð. Með því að fylgjast með áhrifum útflutnings Fjarðaáls á viðskiptajöfnuð fást vísbendingar um langtíma efnahagsleg áhrif álversins á landsvísu.
Árangur
a. Nettó útflutningur Fjarðaáls sem hlutfall af árlegum útflutningi frá Íslandi:
| Útflutningur frá Íslandi | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Nettó útflutningur Fjarðaáls sem hlutfall af árlegum útflutningi frá Íslandi: | 0,0% | 2,0% | 6,5% | 5,7% | 5,5% | 5,3% |
| Viðskipti Fjarðaáls við íslenska aðila í milljónum króna: | 0 | 6.102 | 30.346 | 28.333 | 30.837 | 33.000 |
| Heildarútflutningur frá Íslandi í milljónum króna: | 242.740 | 305.098 | 466.861 | 497.066 | 560.677 | 618.843 |
| % útflutnings Fjarðaáls sem hlutfall af aukningu útflutningsverðmæta | 0,0% | 9,8% | 18,8% | 93,8% | 48,5% | 56,7% |
Heimild: Hagsstofa Íslands og Alcoa Fjarðaál 2010 og 2011.
Uppfært 21.03.12
Vöktunaráætlun
Hvað er mælt ?
a. Nettó útflutningur Fjarðaáls sem hlutfall af árlegum útflutningi frá Íslandi (krónur á ári).
Áætlun um vöktun
a. Hagstofa Íslands fylgist með þessum upplýsingum og er þeim safnað á fyrsta ársfjórðungi hvers árs.
Markmið
a. Markmið á ekki við. Verður vaktað og upplýsingum miðlað.
Grunnástand
a. Árið 2003 var viðskiptahalli á Íslandi, og hefur verið síðan árið 1996.
Árlegur vöruflutningur milli landa árið 2003
| Ár | Útflutningur (í milljónum króna) | % af útflutningi frá Fjarðaáli | Innflutningur (milljónir króna) | Viðskiptajöfnuður (milljónir króna) |
| 2003 | 182.580 | 0 | 216.525 | -33.945 |
Heimild: Hagstofa Íslands, 2003
Forsenda fyrir vali á vísi