3.4 Magn vöru og þjónustu framleitt á Íslandi

Vísir 3.4 - Aðkeyptar vörur og þjónusta

Tilkoma Fjarðaáls og Fljótsdalsstöðvar gæti haft umtalsverð jákvæð áhrif á íslenskt hagkerfi vegna kaupa á aðföngum, bæði vörum og þjónustu, frá íslenskum fyrirtækjum á Austurlandi og annars staðar. Margar starfsgreinar gætu þannig hagnast á framkvæmdunum bæði á byggingar- og rekstrartíma virkjunar og álvers. Ef of stór hluti tekna kemur frá sama aðila getur það dregið úr stöðugleika. Með því að fylgjast með þessari veltuaukningu er hægt að meta hversu mikið aðrar starfsgreinar treysta á viðskipti sem tengjast starfsemi fyritækjanna, sem getur verið vísbending um sjálfbærni efnahagskerfisins.

Árangur

a. Hlutfall keyptrar vöru og þjónustu á Íslandi af heildar vöru- og þjónustukaupum:

 Hlutfall keyptrar vöru og þjónustu á Íslandi  2011  2010 2009 2008   2007
 Fjarðaál  75%  76% 72%   75% 79%
 Landsvirkjun  77%  75%  73%  68% 75%

Becthel hefur skilað inn upplýsingum um heildarkostnað vegna kaupa á vöru og þjónustu árið 2005. Samtals 32,2% er kostnaður vegna vöru og þjónustu sem keypt hefur verið af íslenskum aðilum. Ekki er hægt að nálgast svipaðar upplýsingar hjá verktökum Kárahnjúkavirkjunar.

Heimild: Alcoa Fjarðaál 2012, Landsvirkjun 2012 og Bechtel 2008.
Uppfært 02.04.12

Vöktunaráætlun

Hvað er mælt?
a. Tölur um hlutfall á vörum og þjónustu (mælt í verðgildi í íslenskum krónum) sem Fjarðaál, Landsvirkjun og undirverktakar kaupa á Íslandi (áhrif framkvæmda: bein).

Áætlun um vöktun
a. Fjármálateymi Fjarðaáls og fjármálasvið Landsvirkjunar munu safna þessum upplýsingum árlega fyrir rekstartímann og óska eftir gögnum frá verktökum þar sem það er mögulegt.

Markmið
a. Markmið á ekki við. Vöktun og miðlun upplýsinga.

Forsendur fyrir vali á vísi