3.5 Fjárhagsstaða sveitarfélaga

Vísir 3.5 - Fjárhagsstaða sveitarfélaga

 

 

Árangur


a. Breytingar á útsvarstekjum í völdum sveitarfélögum á Austurlandi.

Útsvarstekjur er sá hluti tekjuskattsins sem rennur til sveitarfélaganna. Hér má sjá yfirlit yfir upphæðir sem útsvarið hefur verið í völdum sveitarfélögum á Austurlandi síðan 2002.

Vísir-3.5.a-álagt nettó útsvar í Fjarðabyggð og FljótsdalshéraðiMyndin hér til hliðar sýnir yfirlit yfir álagt nettó útsvar í Fjarðabyggð og Fljótsdalshéraði frá árinu 2002-2010. Smellið á myndina til að sjá hana í fullri stærð.




Vísir-3.5.a-álagt nettó útsvar á Mið-AusturlandiMyndin hér til hliðar sýnir yfirlit yfir útsvarstekjur á Seyðisfirði, Djúpavogshreppi, Breiðdalshreppi og Fljótsdalshreppi. Smellið á myndina til þess að sjá hana í fullri stærð.

 


Uppfært í desember 2011.
Heimild: Árbók sveitarfélaganna > Skatttekjur. Sjá einnig: Árbók sveitarfélaga

 

b. Hlutfall tekna og gjalda sveitarfélaga (að meðtöldum fjármagnsliðum).

 

Vísir-3.5.b-gjöld sem hlutfall af tekjum hjá sveitarfélögum á MIð-AusturlandiÞessir vísir sýnir hversu mikið hærri eða lægri gjöld sveitarfélaganna eru miðað við tekjur. Myndin hér til hliðar sýnir þróun í öllum sveitarfélögum á Mið-Austurlandi frá árinu 2002 til ársins 2010. Gildi yfir 100% sýnir að gjöld eru meiri en tekjur. Gildi undir 100% sýnir að gjöld eru lægri en tekjur.

 

Uppfært í desember 2011.
Heimild: samband.is>Fjármál sveitarfélaga>Ársreikningar>Rekstrarreikningar. Sjá einnig: Ársreikningar.

Vöktunaráætlun og markmið

Hvað er mælt?

a. Breytingar á útsvarstekjum í völdum sveitarfélögum (áhrif framkvæmda: óbein).

b. Hlutfall tekna og gjalda sveitarfélaga (að meðtöldum fjármagnsliðum) – (áhrif framkvæmd: afleidd).


Áætlun um vöktun

a. Sveitarfélög á Austurlandi munu útvega þessar upplýsingar árlega.

b. Sveitarfélög á Austurlandi munu útvega þessar upplýsingar árlega.


Markmið

a. Á ekki við.

b. Tekjur og kostnaður í jafnvægi.

Forsendur fyrir vali á vísi


Tilkoma Fjarðaáls og Fljótsdalsstöðvar skilar sveitarfélögum auknum tekjum bæði vegna beinna skatttekna af fyrirtækjunum og vegna skatttekna af þeim störfum sem skapast óbeint vegna þeirra. Á móti kemur að kostnaður sveitarfélaga mun einnig aukast þar sem fjölgun íbúa krefst meiri þjónustu. Eftirfarandi eru dæmi um þá þjónustu sem sveitarfélög sinna:

  • Félagsleg þjónusta
  • Tækniþjónusta
  • Menntun, menning, íþróttir og afþreying
  • Gatnagerð, umhverfis- og skipulagsmál
  • Rekstur hafna (ef við á)
  • Vatnsveitur og hitaveitur

  

Ítarefni

Ítarefni