Vísir 1.12 - Vinnumarkaðurinn
Mikilvægt er að viðhalda og auka fjölbreytni atvinnulífsins á áhrifasvæðum Fjarðaáls og Fljótsdalsstöðvar. Fjölbreytt atvinnulíf, sem þarf ekki að treysta of mikið á eina atvinnugrein, er stöðugra til lengri tíma litið en einhæft atvinnulíf. Fylgst er með atvinnu sem tengist framkvæmdum fyrirtækjanna með beinum hætti en einnig í öðrum greinum sem verða fyrir áhrifum af starfsemi þeirra. Hlutfall vinnuafls Fjarðaáls og Landsvirkjunar á Austurlandi er mælt til að meta að hve miklu leyti atvinnulífið byggir á störfum hjá þessum fyrirtækjum.
Árangur
a. Hlutfall nýrra starfsmanna Fjarðaáls og Landsvirkjunar sem eru við ráðningu; Íbúar austurlands, brottfluttir austfirðingar, aðrir starfsmenn búsettir á Íslandi, erlendir starfsmenn búsettir utan Íslands
| Starfsmenn Fljótsdalsstöðvar við ráðningu |
2006 | 2007 |
2008 | 2009 |
2010 | 2011 |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Íbúar austurlands | 2 |
4 |
1 |
1 | 1 | |
| Brottfluttir austfirðingar | 2 |
2 |
||||
| Aðrir starfsmenn búsettir á Íslandi |
1 | 1 | 1 | |||
| Erlendir starfsmen búsettir utan Íslands |
||||||
| Heildarfjöldi ráðnir |
5 | 7 | 2 | 0 | 1 | 1 |
| Starfsmenn Alcoa Fjarðaáls við ráðningu | 2010 | 2011 |
|---|---|---|
| Íbúar austurlands |
52% | 55% |
| Brottfluttir austfirðingar |
4% | 0% |
| Aðrir starfsmenn búsettir á Íslandi |
43% | 44% |
| Erlendir starfsmenn búsettir utan Íslands |
1% | 0% |
Uppfært 07.3.2012
Hlutfallsleg búseta starfsmanna Fjarðaáls og Fljótsdalsstöðvar á árunum 2008 - 2010:
| Alcoa | Landsvirkjun | |||||||
| Starfsmenn búsettir/ár | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 |
2008 | 2009 | 2010 | 2011 |
| Á Austurlandi | 88% | 89% |
99% | 100% | 93% | 93% | 93% | 100% |
| Utan Austurlands | 10% | 12% | 1% | 0% | 7% | 7% | 7% | 0% |
| Erlendis | 1% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% | 0% |
Heimild: Alcoa Fjarðaál og Landsvirkjun 2009-2011.
Uppfært 07.3.12
b. Fjöldi og hlutfall starfa í lykilatvinnugreinum á Austurlandi og á landsvísu
Landshlutagreining á atvinnulífi er ekki lengur unnin hjá Hagstofu Íslands. Þess í stað eru settar fram upplýsingar til fróðleiks um atvinnulíf á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.
Atvinnulíf á Austfjörðum og utan höfuðborgarsvæðisins var um margt frábrugðið því sem gerist á stór Reykjavíkursvæðinu. Munurinn felst einkum í því að einungis 10% starfa á Íslandi voru í landbúnaði, við fiskveiðar og í fiskvinnslu. Utan höfuðborgarsvæðisins falla rúm 20% undir þær atvinnugreinar.
Vinnuafl eftir atvinnugreinum á Íslandi; höfuðborgarsvæðið, landsbyggðin og landið allt.
Hægt er að sjá stöplarit um þróun atvinnugreina frá árinu 2001 með því að smella hér.
Heimild: Hagstofa Íslands 2012
Uppfært 22.02.12
c. Hlutfall vinnuafls á Austurlandi sem starfar fyrir Landsvirkjun og Fjarðaál.
| Hlutfall vinnuafls á Austurlandi sem starfar fyrir Landsvirkjun | |||||
| 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 |
|
| Starfsmenn búsettir á Austurlandi | 0,11% | 0,12% | 0,12% | 0,12% | 0,13% |
| Starfsmenn starfandi á Austurlandi | 0,17% | 0,11% | 0,13% | 0,13% | 0,13% |
| Hlutfall vinnuafls á Austurlandi sem starfar fyrir Fjarðaál | |||||||
| 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010* | 2011 | |
| Starfsmenn búsettir á Austurlandi | 0,16% | 1,16% | 2,83% | 4,00% | 4,71% | 5,41% | |
| Starfsmenn starfandi á Austurlandi | 0,22% | 1,29% | 3,20% | 4,49% | 5,36% | 5,41% | |
*Tölur vantar frá Alcoa fyrir 2010
Vinnuafl eru allir íbúar Austurlands á aldrinum 16-74 ára
Uppfært 13.03.2012
Vöktunaráætlun og markmið
Hvað er mælt?
a. Hlutfall nýrra starfsmanna Fjarðaáls og Landsvirkjunar sem eru við ráðningu (áhrif framkvæmda: bein):
- Íbúar Austurlands;
- Brottfluttir Austfirðingar;
- Aðrir starfsmenn búsettir á Íslandi; og
- Erlendir starfsmenn búsettir utan Íslands
b. Fjöldi og hlutfall starfa í lykilatvinnugreinum á Austurlandi og á landsvísu (áhrif framkvæmda: óbein).
c. Hlutfall vinnuafls á Austurlandi sem starfar fyrir Fjarðaál og Landsvirkjun (áhrif framkvæmda: óbein).
Áætlun um vöktun
a. Starfsmannasvið Landsvirkjunar og mannauðsteymi Fjarðaáls safna þessum upplýsingum jafnóðum. Verktakar skila upplýsingum til þeirra starfsmanna innan fyrirtækja sem bera ábyrgð á vísinum.
b. Upplýsingar fáanlegar á heimasíðu Hagstofunnar. Hachman vísitalan verður notuð til að reikna út fjölbreytni á Austurlandi í samanburði við efnahagslega fjölbreytni á landsvísu. Upplýsingum verður safnað árlega.
c. Upplýsingar frá Landsvirkjun og Fjarðaáli bornar saman við upplýsingar Hagstofunnar um vinnuafl á Austurlandi. Þetta verði gert árlega.
Markmið
a. Byggingar- og rekstrartími: Markmið á ekki við. Upplýsingum verður miðlað.
b. Rekstrartími: Viðhalda fjölbreytileika í atvinnulífi.
c. Rekstrartími: Hlutfall mun minnka með tímanum.
Grunnástand
Atvinnutækifæri á Austurlandi voru tiltölulega fábreytt árið 2003 og hátt hlutfall starfa voru láglaunastörf. Atvinnulíf á Austfjörðum var um margt frábrugðið því sem gerist á landsvísu. Munur felst einkum í því að einungis um 10% starfa á Íslandi voru í landbúnaði, við fiskveiðar og fiskvinnslu en um þriðjungur starfa á Austurlandi féll undir þessar atvinnugreinar.
Vinnuafl eftir atvinnugreinum á Íslandi og á Austurlandi 2003 (grunnástand).

Ekki eru til nýrri upplýsingar sem sýna hlutfallslega skiptingu vinnuafls eftir atvinnugreinum á Austurlandi en upplýsingar frá 2003. Nýjustu upplýsingar Hagstofunnar sýna hlutfallslega skiptingu vinnuafls á Íslandi í heild, landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu á árinu 2008. Til þess að skoða breytingu á landinu í heild er hægt að smella hér.
Heimild: Hagstofa Íslands
Forsenda fyrir vali á vísum
Mikilvægt er að viðhalda og auka fjölbreytni atvinnulífsins á áhrifasvæðum Fjarðaáls og Fljótsdalsstöðvar. Fjölbreytt atvinnulíf, sem þarf ekki að treysta of mikið á eina atvinnugrein, er stöðugra til lengri tíma litið en einhæft atvinnulíf. Fylgst er með atvinnu sem tengist framkvæmdum fyrirtækjanna með beinum hætti en einnig í öðrum greinum sem verða fyrir áhrifum af starfsemi þeirra. Hlutfall vinnuafls Fjarðaáls og Landsvirkjunar á Austurlandi er mælt til að meta að hve miklu leyti atvinnulífið byggir á störfum hjá þessum fyrirtækjum.
