Vísir 1.16 - Opinber þjónusta í nálægum byggðum
Þessi vísir er í endurskoðun þar sem ekki er lengur gerð þjónustukönnun hjá Landlæknisembættinu, eins og lagt var af stað með í upphafi. Niðurstöður liggja fyrir frá árunum 2003 og 2005 varðandi þjónustu á heilsugæslustöðvum á Austurlandi. Að auki hefur heldur ekki verið kannað sérstaklega ánægja íbúa með opinbera þjónustu á svæðinu, en Alcoa Fjarðaál hefur látið spyrja eftirfarandi spurningar í viðhorfskönnunum sínum frá árinu 2004: „Ertu ánægð(ur) eða óánægð(ur) með þá þjónustu sem er í boði á Mið-Austurlandi?" og til fróðleiks eru niðurstöður svara við þeirri spurningu birtar í niðurstöðum hér. Capacent Gallup framkvæmdi könnunina fyrir Alcoa Fjarðaál.
Árangur
a.Landlæknisembættið stóð áður fyrir þjónustukönnunum í heilsugæslustöðvum á landinu á tveggja til þriggja ára fresti. Í töflunni hér að neðan eru niðurstöður úr tveimur spurningum í könnuninni. Þessar niðurstöður eru fengnar með því að leggja saman svör frá öllum heilsugæslustöðum á Austurlandi en ekki fengust upplýsingar um niðurstöður fyrir einstakar stöðvar.
Könnun um heilsugæsluþjónustu á Austurlandi 2005. Allar heilsugæslustöðvar samanlagt.
| Fékkstu úrlausn erindisins? | Ertu sáttur við úrlausnina? | |
| Já | 80,3% | 80,6% |
| Að hluta | 16,8% | 17,5% |
| Nei | 2,9% | 1,9% |
Þjónustukönnun á heilsugæslustöðvum á Austurlandi í febrúar 2003. Allar heilsugæslustöðvar samanlagt.
| Fékkstu úrlausn erindisins? | Ertu sáttur við úrlausnina? | |
| Já | 77,7% | 83,5% |
| Að hluta | 20,8% | 13,5% |
| Nei | 1,5% | 3,1% |
b. Ekki hefur verið framkvæmd könnun á meðal íbúa um ánægju með opinbera þjónustu. Hinsvegar hefur Alcoa Fjarðaál spurt um ánægju með þjónustu á Mið-Austurlandi í viðhorfskönnunum sínum frá 2007. Til fróðleiks eru þær niðurstöður birtar hér.
Á myndinni sést þróun í ánægju íbúa með þjónustu á Mið-Austurlandi en hlutfall ánægðra hefur farið úr 70% árið 2007 í 58,6% árið 2010. Þess má geta að nýjasta könnunin er framkvæmd í nóvember og á árinu 2010 var mikill niðurskurður áætlaður til sjúkrahúsa á landsbyggðinni og gæti sú umræða litað niðurstöður að einhverju leiti.
Vöktunaráætlun og markmið
Hvað er mælt?
a) Ánægja íbúa með heilbrigðisþjónustu á Austurlandi (áhrif framkvæmda: afleidd)
b) Ánægja íbúa með opinbera þjónustu í sveitarfélögum
Áætlun um vöktun
a) Landlæknisembættið stendur árlega fyrir könnunum í öllum heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum landsins. Niðurstöður úr síðustu spurningunni (16 e) verða notaðar: „Í heildina, hversu ánægð(ur)/óánægð(ur) ertu með þjónustu í þessari heilsugæslustöð?“ Upplýsingum verður safnað árlega.
b) Spurningalisti verður útbúinn í samvinnu við Gallup.
Markmið
a.Niðurstöður stöðugar eða batni.
b.Verður ákvarðað í samvinnu við sveitarfélög þegar niðurstöður úr fyrstu könnun liggja fyrir.
Ástæða fyrir vali
Tilkoma Fjarðaáls og Fljótsdalsstöðvar getur leitt til breytinga á eftirspurn eftir opinberri þjónustu á svæðinu. Aukinn fjöldi fólks í nálægum byggðum á byggingar- og rekstartíma virkjunar og álvers mun leiða til þess að meiri eftirspurn verður t.d. eftir heilsugæslu og þjónustu grunnskóla og leikskóla. Fjölgun fólks verður annars vegar vegna þeirra starfsmanna sem vinna fyrir Fjarðaál, Landsvirkjun og verktaka þeirra, og hins vegar vegna þeirra sem flytja á svæðið vegna óbeinna starfa sem skapast í þjónustu og verslun í tengslum við fyrirtækin. Aðgengi að heilsugæslu og gæði þjónustu eru dæmi um opinbera þjónustu sem ætti að þróast í samræmi við fjölgun fólks á svæðinu.
