Vísir 1.17 - Gæði skóla
Árangur
A. Meðaleinkunn fjórða, sjöunda og tíunda bekkja á Austurlandi á árunum 2007-2011.
Samræmd könnunarpróf eru framkvæmd á landsvísu í fjórða, sjöunda bekk og tíunda bekk. Samkvæmt grunnskólalögum nr. 91/2008, skal leggja samræmd könnunarpróf fyrir 4., 7. og 10. bekk að hausti ár hvert.
Tilgangur prófana er að veita nemendum, foreldrum þeirra og skólum stöðumat í upphafi skólaárs. Niðurstöður prófana eiga síðan að nýtast nemendum og skólum á skólaárinu ef að skerpa þarf á einhverjum þáttum sem er að finna í Aðalnámskrá.
Í 4. og 7. bekk er prófað í íslensku og stærðfræði, en í 10. bekk er prófað í íslensku, stærðfræði og ensku. Ætlast er til þess að allir nemendur í áðurnefndum bekkjum taki prófin.
Hægt er að sjá stærri myndir með því að smella á þær.
Heimild: Námsmatstofnun (rannsóknargögn).
Uppfært 24.02.12
B. Hlutfall grunnskólakennara með kennsluréttindi
Hlutfall grunnskólakennara með kennsluréttindi hefur verið töluvert lægra á Austurlandi í samanburði við landið allt. Hinsvegar hefur kennurum í grunnskólum án kennsluréttinda farið fækkandi á Austurlandi sem og á landinu öllu. Ein ástæðan kann að vera sú að þegar atvinnuleysi eykst verður meiri framboð af vinnuafli og því auðveldara að fá kennaramenntað fólk í grunnskólana. Önnur skýring kann einfaldlega að vera sú að fólksfjölgun hefur verið á Austurlandi og því hefur verið hægara um vik að fá mentað fólk til starfa í grunnskólum
Smellið á myndirnar til að sjá stærri útgáfu.
Heimild: Hagstofa.is>Skólamál>Starfsfólk við kennslu eftir kyni, landsvæðum og kennsluréttindum.
Uppfært 05.03.2012
Vöktunaráætlun og markmið
Hvað er mælt?
a. Niðurstöður samræmdra prófa í grunnskóla (4., 7. og 10 bekk) á Austurlandi og á landsvísu (áhrif framkvæmda: afleidd)
b. Hlutfall grunnskólakennara án réttinda á Austurlandi borið saman við á landsvísu (áhrif framkvæmda: afleidd)
Áætlun um vöktun
a. Námsmatsstofnun safnar upplýsingum um niðurstöður samræmdra prófa og birtir á vefsíðu. Einnig er mögulegt að leita til stofnunarinnar og biðja um sérstaka útreikninga, ef upplýsingar á heimasíðu eru ekki nægjanlegar. Upplýsingum er safnað árlega.
b. Upplýsingar um menntun kennara í grunnskólum er hægt að nálgast á heimasíðu Hagstofunnar. Upplýsingum er safnað árlega.
Markmið
a. Meðaleinkunnir á Austurlandi hærri eða jafnháar meðaltali á landsvísu.
b. Hlutfall réttindalausra kennara á Austurlandi lægra eða jafnt og á landsvísu.
Forsendur fyrir vali á vísi
Tilkoma nýrra og stórra fyrirtækja geta leitt til breytinga í skólum í nálægum byggðum. Fólksfjölgun á svæðinu bæði á byggingar- og rekstrartíma mun auka álag á grunnskóla sveitarfélagana þar sem börnum mun fjölga. Beinu áhrifin eru vegna þeirra sem flytja til svæðisins vegna vinnu við Fljótsdalsstöð og Fjarðaál en óbein áhrif eru vegna fólks sem flytur á svæðið vegna atvinnutækifæra sem skapast óbeint í tengslum við fyrirtækin. Verkefni skólanna verður því að viðhalda gæðum skólastarfs fyrir sífellt stærri nemendahóp, sem hugsanlega mun einnig hafa fjölbreyttari menningarlegan bakgrunn en núverandi nemendur.
