Vísir 1.19 - Viðhorf samfélags til Fjarðaáls og LV
Árangur
Eftirfarandi myndir sýna hlutfall Austufirðinga sem eru jákvæðir gagnvart Fjarðaáli og Landsvirkjun á árunum 2004 - 2011. NIðurstöður úr könnunum sýna að frá því að mælingar hófust árið 2004 hefur Alcoa Fjarðaál náð þeim markmiðum sem samráðshópur sjálfbærniverkefnisins setti, eða að 75% íbúa eða hærra hlutfall væru jákvæðir í garð fyrirtækjanna. Landsvirkjun hefur framkvæmt mælingar frá 2005 og er nú örlítið undir markmiði um að 75% íbúa eða hærra hlutfall væru jákvæðir í garð Landsvirkjunar.
Viðhorf Austfirðinga til Landsvirkjunar. Rúm 71% Austfirðinga eru jákvæðir gagnvart fyrirtækinu árið 2011. Myndin sýnir þróun viðhorfa frá árinu 2005. Hægt er að sjá skýrslur Capacent Gallup úr viðhorfskönnununum í ítarefni.
Viðhorf Austfirðinga til Alcoa Fjarðaáls 2011. Tæp 83% Austfirðinga eru jákvæðir gagnvart fyrirtækinu árið 2011. Myndin að neðan sýnir þróun viðhorfs frá árinu 2004. Hægt er að sjá skýrslur Capacent Gallup úr viðhorfskönnununum í ítarefni.
|
Ár |
2011 |
2010 |
2009 | 2008 | 2007 | 2006 | 2005 |
2004 |
|
Fjarðaál |
82,9% |
81,2% |
78,3% | 82,0% | 78,1% | 83,9% | 78,5% |
77,7% |
|
Landsvirkjun |
71,4% |
74,6% |
76,4% | 72,9% | 77,1% | - | 71,5% |
- |
Hjá Alcoa Fjarðaáli hljómaði spurningin eftirfarandi: Hversu jákvæð(ur) / neikvæð(ur) ertu gagnvart Alcoa Fjarðaáli. Hjá Landsvirkjun hljómaði spurningin eftirfarandi: Hversu jákvæð(ur) / neikvæð(ur) ertu gagnvart Landsvirkjun. Í báðum tilvikum var svarmöguleikinn eftirfarandi: Mjög jákvæður, frekar jákvæður, hvorki né, frekar neikvæður og mjög neikvæður. Ekki voru gerðar viðhorfskannanir vegna Landsvirkjunar árin 2006 og 2004.
Heimild: Kannanir Capacent Gallup, 2004 - 2010.
Vöktunaráætlun og markmið
Hvað er mælt ?
a. Regluleg könnun á samfélagslegum viðhorfum – hlutfall svarenda sem telja árangur Fjarðaáls og Landsvirkjunar varðandi framkvæmdir og samskipti við íbúa góðan eða mjög góðan (áhrif framkvæmda: bein).
Áætlun um vöktun
a. Könnun verður gerð árlega á vegum Gallup fyrir bæði fyrirtækin
Markmið
a. 75% Austfirðinga sé jákvæðir gagnvart Fjarðaáli og Landsvirkjun.
Forsendur fyrir vali
Bæði Fjarðaál og Landsvirkjun leggja mikla áherslu á jákvæð samskipti við íbúa á Austurlandi. Með því að axla bæði umhverfislega og samfélagslega ábyrgð geta fyrirtækin ræktað góð tengsl við Austfirðinga og þannig vonandi viðhaldið stuðningi samfélagsins við starfsemi fyrirtækjanna á svæðinu.
Ítarefni
Fjarðaál:
Könnun Capacent Gallup árið 2011
Könnun Capacent Gallup árið 2010
Könnun Capacent Gallup árið 2009
Könnun Capacent Gallup árið 2008
Könnun Capacent Gallup árið 2007
Könnun Capacent Gallup árið 2006
Könnun Capacent Gallup árið 2004 og 2005
Landsvirkjun:
Könnun Capacent Gallup árið 2011
Könnun Capacent Gallup árið 2010
Könnun Capacent Gallup árið 2009
Könnun Capacent Gallup árið 2008
Könnun Capacent Gallup árið 2007
Könnun Capacent Gallup árið 2005
Ekki var gerð könnun árið 2006 og 2004 hjá Landsvirkjun.
