1.1 Kynjahlutfall í vinnuafli

1.1 - Kynjahlutfall í vinnuafli

Kynjahlutfall starfsfólks Landsvirkjunar og Fjarðaáls samanborið við landið


Starfsmenn Alcoa taka við Jafnréttisverðlaunum 2008Í þessum vísi má skoða hlutfall vinnuafls Fjarðaáls og Landsvirkjunar samkvæmt starfaflokkun ÍSTARF95 auk hlutfall kynja í hverjum starfaflokki. Einnig má skoða hver laun kvenna eru í hlutfalli af launum karla samkvæmt sömu starfaflokkum.

Heimildir eru sóttar til Hagstofu Íslands auk upplýsingakerfis Landsvirkjunar og Fjarðaáls.

Myndin sýnir starfsfólk Fjarðaáls taka á móti Jafnréttisverðlaununum 2008.

Árangur



a) Hlutfall karla og kvenna í störfum hjá Fjarðaáli og Landsvirkjun í samanburði við kynjahlutföll í sambærilegum störfum á landsvísu:

1.1-a-kynjahlutfall-i-vinnuafli-2011


Hér að ofan má sjá tölulegan samanburð á milli starfaflokka samkvæmt niðurstöðum mælinga. Skoðað er hlutfall starfsmanna í hverjum starfaflokki samkvæmt ÍSTARF95 sem og hlutfallsleg skipting kynjanna í viðkomandi starfaflokki. Heimildir eru sóttar til Hagstofu Íslands, Landsvirkjunar og Fjarðaáls 2011.


Hér að neðan má sækja pdf skjal með sundurliðuðum töflum frá 2007-2011.

 Kynjahlutfall í vinnuafli vísir 1.1-a: samantekt 2007-2011.

Uppfært 18.05.12

b) Launahlutfall kynjanna í sambærilegum störfum: regluleg laun kvenna sem hlutfall af reglulegum launum karla hjá Fjarðaáli og Landsvirkjun. Athugið þessi vísir verður uppfærður næst fyrir 2013 samkvæmt vöktunaráætlun.

1.1.b-tafla-2008-2009

Hér að ofan má sjá launahlutfall kvenna, í mismunandi starfaflokkum, sem hlutfall af launum karla hjá Fjarðaáli, Landsvirkjun og á öllu landinu á árunum 2008 og 2009. Athugði að niðurstöður hvers árs er hægt að sjá hér til hliðar með því að smella á árið. Ef launahlutfallið er 100%, merkir það jafnhá laun. Ef Launahlutfall er undir 100%, merkir það að karlar hafa hlutfallslega hærri laun og ef launahlutfallið er yfir 100%, merkir það að konur hafa hlutfallslega hærri laun.

* Annað kynið starfar nær eingöngu í þessum starfaflokkum og því ekki sett ur fram samanburður á launum.
** Laun starfsmanna ekki skilgreind í þennan starfaflokk og/eða ekki skilgreint á landsvísu. 

Vöktunaráætlun og markmið

Hvað er mælt?

a) Hlutfall karla og kvenna í störfum hjá Fjarðaáli og Landsvirkjun í samanburði við kynjahlutföll í sambærilegum störfum á landsvísu. Mælingar eru byggðar á starfaflokkun ÍSTARF95. (áhrif framkvæmda: bein):

  • Stjórnendur (ÍSTARF 12 - 13)
  • Sérfræðingar (ÍSTARF 2)
  • Verkfræðingar (ÍSTARF 2142 - 2147)
  • Tæknar og sérmenntað starfsfólk (ÍSTARF 3)
  • Skrifstofustörf (ÍSTARF 4)
  • Þjónustu-. sölu og gæslustörf (ÍSTARF 5)
  • Iðnaðarmenn og sérhæft iðnverkafólk (ÍSTARF 7)
  • Véla- og vélagæslufólk (ÍSTARF 8)
  • Ósérhæft starfsfólk (ÍSTARF 9)

b) Launahlutfall kynjanna í sambærilegum störfum er mælt sem regluleg laun kvenna sem hlutfall af reglulegum launum karla hjá Fjarðaáli og Landsvirkjun miðað við tegund starfa (áhrif framkvæmda: bein).

Ef hlutfallið er 100%, þá er launahlutfall kynjanna jafnt. Regluleg laun eru greidd laun fyrir umsaminn vinnutíma hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Í þessum launum eru hvers konar álags-, bónus- og kostnaðargreiðslur, svo sem föst yfirvinna, sem gerðar eru upp á hverju útborgunartímabili. Við útreikninga er ekki tekið tillit til uppmælinga, ákvæðisgreiðslna, hlunninda, akstursgreiðslna né annarra óreglulegra greiðslna. Regluleg laun eru reiknuð ef greiddar stundir í dagvinnu eða vaktavinnu eru a.m.k. 90% af dagvinnuskyldu. Ef greiddar stundir í dagvinnu og vaktavinnu eru á bilinu 90-100% af dagvinnuskyldu eru þau umreiknuð í fullt starf. Laun í hlutastörfum eru umreiknuð eins og um væri að ræða fullt starf og laun fólks sem vinnur 3 mánuði eða skemur er ekki tekið.

Áætlun um vöktun 

a) Upplýsingum fyrir byggingartíma verður safnað í mánaðarlegum skýrslum verktaka til Landsvirkjunar og árlegum skýrslum verktaka til Fjarðaáls. Starfsmannasvið Landsvirkjunar og Fjarðaáls safna upplýsingum á rekstrartíma. Upplýsingum verður safnað árlega.

b) Starfsmannasvið Landsvirkjunar og fjármálasvið Fjarðaáls munu safna gögnum. Upplýsingum verður safnað á fimm ára fresti.

Markmið

a) Hlutfall karla og kvenna í störfum hjá:

  • Landsvirkjun: 60% karlar og 40% konur árið 2015
  • Fjarðaáli: 50% karlar og 50% karlar árið 2015


b) Launahlutfall kynjanna hjá:

  • Landsvirkjun: jafnt
  • Fjarðaáli: jafnt

Forsenda fyrir vali á vísi

Þessi ví­sir á að fylgjast með jafnvægi kynjanna á vinnumarkaði. Aðdráttarafl höfuðborgarsvæðisins hefur leitt til fólksfækkunar á Austurlandi, þar sem fjölbreyttari mennta- og atvinnutækifæri á suðvesturhorninu hafa dregið að sér ungt fólk frá svæðinu. Við þetta bætist að konur hafa ekki átt um marga kosti að velja á vinnumarkaði þar sem aðaláherslan er á hefðbundnar karlagreinar s.s. sjómennsku og landbúnað. Ójafnvægi á kynjahlutföllum á vinnumarkaði getur haft áhrif á samfélagslegan stöðugleika. Framkvæmdirnar á Austurlandi og tilkoma Fjarðaáls snýr hugsanlega við þessari þróun og leiðir til þess að fólk flytji til Austurlands vegna atvinnutækifæra.


Ítarefni

Hér má nálgast exel skjal þar sem að finna má töflur með kynjahlutfalli hjá Fjarðaáli og Landsvirkjun, samanborið við vinnumarkað höfuðborgarsvæðisins, utan höfuðborgarsvæðisins og landið í heild.

vísir 1.1 a allar töflur sundurliðaðar