Niðurstöður 2009
Niðurstöður mælinga 2009
Hér að neðan má sjá hvernig starfsmenn Fjarðaáls og Landsvirkjunar skiptast á milli starfaflokka auk hlutfall kvenna og karla í hverjum starfaflokki samkvæmt ÍSTARF95. Heildarfjöldi starfsmanna hjá Fjarðaáli á árinu 2009 var 672. Hlutfall kynjanna er þannig að um 74% starfsmanna voru karlar og um 26% voru konur. Heildarfjöldi starfsmanna hjá Landsvirkjun var 191 og þar af voru um 68% karlar og 32% konur. Athugið að ekki eru komnar tölur fyrir allt landið fyrir árið 2009.
