Vísir 1.20 - Framboð á menningarviðburðum
Þessi vísir er í endurskoðun.
Bæði Fjarðaál og Landsvirkjun styrkja menningarviðburði á Austurlandi. Hér sést leikhópur Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu á sviði en sýningin var eitt af atriðunum á Þjóðleik 2009. Í Þjóðleik tóku þátt 14 leikhópar en þer sem sóttu hann voru m.a. forseti Íslands og menntamálaráðherra.
Forsendur fyrir vali
Fjölbreytt framboð menningarviðburða er nokkuð sem getur aukið lífsgæði íbúa verulega. Tækifæri til að njóta menningar getur orðið hvati þess að nýir íbúar tengist svæðinu og skiptir máli fyrir félagslega velferð bæði núverandi íbúa og þeirra sem flytja til Austurlands í kjölfar framkvæmda.
Vöktunaráætlun og markmið
Hvað er mælt?
a. Fjöldi menningarviðburða á ári (áhrif framkvæmda: afleidd)
Áætlun um vöktun
a. Upplýsingum verður safnað jafnóðum með talningu auglýstra viðburða í svæðisbundnum fjölmiðlum.
Markmið
a. Fjöldi menningarviðburða meiri eða jafnt viðmiðunargildi
Árangur
a. Fjöldi menningarviðburða á Austurlandi (talið eftir auglýsingum í svæðisbundnum fjölmiðlum og auglýsingamiðlum).
| 1999 | 2005 | |
| Austurland | 398 | 542 |
Heimild: Ívar Jónsson (2007)
Ítarefni
Ívar Jónsson (2007) Árangursmat á samningi ríkisins og sveitarfélaganna á Austurlandi frá 14. maí 2001 og 15. mars 2005 um menningarmál.
