1.2 Ánægja starfsfólks

Vísir 1.2 - Ánægja starfsfólks Fjarðaáls og Landsvirkjunar


Ánægja starfsfólks vísir 1-2Capacent (áður Gallup) hefur framkvæmd ánægjukannanir starfsfólks hjá íslenskum fyrirtækjum í nokkurn tíma. Með því að taka þátt í slíkri könnun geta fyrirtækið borið sig saman við niðurstöður úr öðrum fyrirtækjum auk þess að fá tækifæri til þess að bæta starfsumhverfi og starfsánægju eftir þörfum. 

Landsvirkjun og Alcoa hafa látið Capacent gera ánægjukönnun á meðal starfsfólk fyrirtkækjanna undanfarin ár og má sjá niðurstöðurnar hér fyrir neðan.

Árangur

 

Starfsánægja-Alcoa-LV-2008-2011
 

Ofangreindar tölur sýna niðurstöðu svara við spurningunni: „Á heildina litið er ég ánægð(ur) í starfi mínu hjá Alcoa Fjarðaáli" eða „Á heildina litið er ég ánægð(ur) í starfi mínu hjá Landsvirkjun," eftir því sem við á.

Einkunnarskalinn í könnuninni er á bilinu 0 til 5. Ekki var gerð könnun hjá Fjarðaáli 2009 og ekki var gerð könnun hjá Landsvirkjun árið 2010.

Samanburðarbil Capacent/Gallup:
Styrkleikabil: Fullyrðing fær meðaltalið 4,2 eða hærra á kvarðanum 1-5.
Starfshæft bil: Fullyrðing fær meðaltalið á bilinu 3,7- 4,19 á kvarðanum 1-5.
Aðgerðabil: Fullyrðing fær meðaltalið 3,69 eða lægra á kvarðanum 1-5.

Síðast uppfært í 6. febrúar 2012.

Vöktunaráætlun og markmið


Hvað er mælt?

a. Reglubundin könnun Fjarðaáls og Landsvirkjunar meðal starfsfólks um ánægju með starf og vinnustað (áhrif framkvæmda: bein).


Áætlun um vöktun

a. Gallup sér um að gera kannanir innan fyrirtækja og einnig verður stuðst við kannanir VR. Gögnum verður safnað árlega.


Markmið

Fljótsdalsstöð: 4,2 eða hærra á mælikvarða Gallup (vera á bláu svæði í styrkleikabili).

Fjarðaál: Vera meðal fimm hæstu á landsvísu í könnun VR.


Ástæða fyrir vali


Fjarðaál og Landsvirkjun geta haft bein áhrif á vellíðan starfsmanna sinna. Starfsfólk sem er ánægt í starfi og sátt við vinnustaðinn er líklegra til að haldast lengur í starfi. Langur starfsaldur hefur jákvæð áhrif á efnahagslegan stöðugleika á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar og Fjarðaáls. Með reglulegum könnunum um vinnustaðinn og ánægju í starfi geta Fjarðaál og Landsvirkjun fylgst með viðhorfum starfsmanna og brugðist við ef niðurstöður kalla á úrbætur