1.5 Samfélagsleg virkni starfsfólks

Vísir 1.5 - Samfélagsleg virkni starfsfólks

Visir-1.5-mynd-samfelagsleg-virkni

Íbúum á Austurlandi hefur fjölgað í tengslum við framkvæmdir á vegum Landsvirkjunar og Alcoa vegna starfa sem skapast beint eða óbeint vegna framkvæmda. Mikilvægt er að nýir íbúar aðlagist samfélaginu sem best. Fjarðaál hjálpar til við þetta ferli með því að hvetja starfmenn sína til þátttöku í félagsstörfum. 

Árangur


Árið 2007 sinntu 109 starfsmenn eða 24,1% starfsmanna Fjarðaáls samfélagsvinnu í samfélagsverkefnum Alcoa. Fjöldi starfsmanna sem taka þátt í sjálfboðavinnu í samfélaginu hefur svo vaxið jafnt og þétt og árið 2011 tóku 363 starfsmenn eða 76% starfsmanna þátt í sjálfboðavinnu. Töflurnar hér að neðan sýna annarsvegar þróun fjölda starfsmanna sem tekur þátt í sjálfboðavinnu og hinsvegar þróun í fjölda vinnustunda sem starfsmenn leggja af mörkum við sjálfboðavinnu á árunum 2007-2011.

Fjöldi þátttakenda í sjálfboðavinnu og hlutfall af heild í prósentum:

Vísir-1.5-Sjálfboðavinna-fjöldi-2007-2011


Fjöldi vinnustunda sem starfsmenn lögðu fram í sjálfboðavinnu:

Vísir-1.5-sjálfboðavinnustundir-2007-2011

Sjálfboðavinna starfsmanna,  með stuðningi Alcoa Fjarðaáls, byrjaði ekki að neinu marki fyrr en árið 2007 þar sem ekki þótti skynsamlegt að auka álag á starfsmönnum meðan á uppbyggingartíma álversins stæði. Talning á sjálfboðavinnu hófst því ekki fyrr en árið 2007.

Heimild: Alcoa Fjarðaál, 2009-2012. Uppfært 23.01.2012.

Vöktunaráætlun og markmið


Hvað er mælt

a. Tími sem starfsmenn Fjarðaáls nota í samfélagsverkefni sem Fjarðaál styrkir (áhrif framkvæmda: bein). Ekki er gerð nein mæling fyrir starfsmenn Fljótsdalsstöðvar að svo stöddu.


Áætlun um vöktun

a. Fylgst verður með hvernig styrkjum er úthlutað og upplýsingum safnað í lok hvers árs.


Markmið 

 a. 60 prósent starfsmanna taki þátt í samfélagsverkefnum Alcoa (Action, Bravo, Month of Service).

Forsendur fyrir vali á vísi



Íbúum á Austurlandi hefur fjölgað í tengslum við framkvæmdir á vegum Landsvirkjunar og Alcoa vegna starfa sem skapast beint eða óbeint vegna framkvæmda. Mikilvægt er að nýir íbúar aðlagist samfélaginu sem best. Fjarðaál hjálpar til við þetta ferli með því að hvetja starfmenn sína til þátttöku í félagsstörfum.