Vísir 1.6 - Íslenskum lögum og reglugerðum fylgt
Öll starfsleyfi vegna framkvæmda byggjast á því að fyrirtækin samþykki að fylgja öllum lögum og reglum sem eru í gildi á Íslandi hvort sem um er að ræða byggingartíma, rekstrartíma eða viðhald á mannvirkjum. Hér að neðan er hægt að nálgast starfsleyfi Fjarðaáls og starfsemi virkjunar til þess að kynna sér hvaða takmarkanir og reglur starfsleyfunum eru sett.
| |
|
|
| Starfsleyfi Fjarðaáls | Starfsleyfi virkjunar |
Árangur
Heilbrigðiseftirlit fer fram á grunni starfsleyfis, laga og reglugerða sem um starfsemina gilda. Skoðuð eru þau atvik þar sem ekki tekst að uppfylla þær kröfur sem eru í starfsleyfi.
Heilbrigðiseftirlit skilgreinir tvenns konar alvarleika mála í við skoðun í reglubundnu eftirliti:
- Í eftirlitsskýrslu getur heilbrigðisfulltrúi gert athugasemdir. og ábendingar um atriði sem betur mega fara en eru ekki alvarleg brot á reglum eða starfsleyfi.
- Ef um alvarleg brot er að ræða skal skrifa sérstakt bréf með kröfum um úrbætur.
Talin eru þau atvik sem heilbrigðiseftirlit setur í flokk 2. og tilvik sem ábending kemur um brot á reglum, þótt alvarleiki gefi ekki ástæðu til sérstaks kröfubréfs. Hér að neðan má sjá tilvik í 2. flokki hjá Fjarðaáli og Fljótsdalsstöð á tímabilinu 2007-2011.
| Fyrirtæki/ár | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | |
| Alcoa Fjarðaál | 0 |
2 | 0 | 0 | 0 | |
| Landsvirkjun | 0 | 0 | 1 * | 0 | 0 |
* Árið 2009 var um að ræða brot á reglugerð nr. 522/1994hjá LV um matvælaeftirlit og hollustuhætti. Umbótum er lokið.
Uppfært 9.2.2012.
.
Vöktunaráætlun og markmið
Hvað er mælt?
a. Fjöldi atvika á ári þar sem lögum og reglum er ekki fylgt (áhrif framkvæmda: bein).
Áætlun um vöktun
a. Fjarðaál og Landsvirkjun fylgjast með þessum mælikvarða. Hvert atvik verður skráð.
Markmið
a. Ekkert atvik á ári.
Forsenda fyrir vali á vísi
Öll starfsleyfi vegna framkvæmda byggjast á því að fyrirtækin samþykki að fylgja öllum lögum og reglum sem eru í gildi á Íslandi hvort sem um er að ræða byggingartíma, rekstrartíma eða viðhald á mannvirkjum.a. Fjöldi atvika á ári þar sem lögum og reglum er ekki fylgt (áhrif framkvæmda: bein).
Ítarefni
Hér að neðan má nálgast starfsleyfi Alcoa Fjarðaáls og starfsleyfi virkjunar.
| |
|||
|
Starfsleyfi Fjarðaáls |
Starfsleyfi virkjunar |
Starfsleyfi Fjarðaáls |
