Vísir 2.11 - Hljóðmengun við Fjarðaál og í Reyðarfirði

Á meðan engar breytingar eru á starfsemi álvers, eru ekki framkvæmdar hljóðmælingar. Nú standa yfir framkvæmdir vegna kersmiðju á álverslóð. Hljómælingar verða framkvæmdar þegar kersmiðjan er komin í fullan rekstur.
Árangur
Í töflunni hér að neðanhér fyrir neðan má sjá niðurstöður frá 7 mælistöðvum á völdum stöðum í nágrenni álvers í ágúst 2008. a og b. Meðal hljóðstyrkur (DnL) á völdum mælistöðvum við álverið og í Reyðarfirði. Markmið um hljóðstyrk standast, en hann fer ekki yfir þau mörk sem sett voru fyrir þennan vísi. Ekki hefur verið þörf fyrir frekari mælingar en þær sem framkvæmdar voru 2008 þar sem starfsemi hefur verið óbreytt. Nú hefur sú breyting orðið að rekstur kersmiðju hefur bæst við starfsemi Fjarðaáls. Hljóðmælingar verða framkvæmdar eftir að kersmiðjan hefur tekið til starfa, á vormánuðum 2012.
Niðurstöður hljóðstigsmælinga (LAeq) í nágrenni álvers í ágúst 2008.

Heimild: Alcoa Fjarðaál, 2009
Til að fylgjast með því hvort hávaði frá álverinu sé innan viðmiðunarmarka var hljóðstig í nánasta umhverfi álversins mælt í ágúst 2008. Helstu hávaðauppsprettur eru löndunarbúnaður og þurrhreinsistöðvar og eru mælingar framkvæmdar á meðan löndun er í gangi. Var hljóðstig mælt á 7 stöðum á Reyðarfirði, 4 stöðum við lóðamörk álversins, í landi Hólma, í þéttbýlinu á Reyðarfirði og sunnan fjarðarins til móts við álverið. Viðmiðunarmörk við lóðamörk eru 70 dB og voru allar mælingar innan þeirra marka.
Smellið hér til að sjá stærri mynd af mælistöðum á korti.
Vöktunaráætlun og markmið
Hvað er mælt ?
- Meðal hljóðstyrkur (DnL) á völdum mælistöðvum við Fjarðaál (áhrif framkvæmda: bein).
- Meðal hljóðstyrkur (DnL) á völdum mælistöðvum í Reyðarfirði (áhrif framkvæmda: óbein).
Áætlun um vöktun
- Hljóðmælir mun safna gögnum með reglulegu millibili. Gögnum verður safnað einu sinni í mánuði vegna grunnástands og síðan í hvert sinn sem hljóðstyrkur breytist.
- Hljóðmælir mun safna gögnum með reglulegu millibili. Gögnum verður safnað einu sinni í mánuði vegna grunnástands og síðan í hvert sinn sem hljóðstyrkur breytist.
Myndin að neðan sýnir staðsetningu hljóðmæla.

Heimild: Alcoa Fjarðaál 2009
Markmið
- Hljóðstyrkur að degi/kveldi/nóttu (db(A))
-
- Álver: 70/70/70
- Léttur iðnaður/íbúðarhús: 55/50/40
- Eingöngu íbúðarhús: 50/45/40
- Sumarhús: 40/35/35
- Byggingartími: Minna eða jafnt og 65 db (A)
-
- Rekstrartími: Minna eða jafnt og 55 db (A)
Forsendur fyrir vali
Hávaði í næsta nágrenni við byggð getur haft áhrif á lífsgæði íbúa. Stöðugur hávaði dregur úr aðdráttarafli svæðis til búsetu og getur haft neikvæð áhrif á búsetu til lengri tíma. Tryggja þarf að hávaði frá Fjarðaáli hafi ekki neikvæð áhrif á íbúa svæðisins. Einhver hávaði mun stafa af flutningi hráefnis og búnaðar til og frá álverinu, annarri umferð og frá rekstri álversins.
Ítarefni
Skýrsla um hljóðmengun 2004 (pdf)
