2.13 Losun gróðurhúsalofttegunda

Vísir 2.13 - Losun gróðurhúsalofttegunda

Árangur

a. Koldíoxíðnotkun (CO2) og notkun PFC efna álvers vegna hvers tonns sem framleitt er af áli (CO2 ígildi/tonn). Í töflunni hér að neðan má sjá heildarlosun efna á árunum 2007-2012.

Losun efna CO2 PFC 
Ár/losun t CO2/t ál   t ígildi CO2/t ál
 2012  1,49  0,13
 2011  1,50 0,07
 2010  1,78**  0,25***
 2009  1,50  0,13
 2008  1,20  0,57*
 2007  1,50  0,92*

*Losun PFC efna er meiri á gangsetningartíma álversins en þegar rekstur þess verður kominn í jafnvægi.
** Á árinu komu upp ófyrirséð atvik sem höfðu áhrif á stöðuleika kerskálanna og þar með losun gróðurhúsalofttegunda. Í eðlilegum rekstri ætti losunin að vera 1,67t CO2/t.
***  Á árinu kom upp bruni, en það skýrir hækkun losunar PFC á milli áranna 2009 og 2010.

Heimild: Alcoa Fjarðaál, 2009 - 2012.
Uppfært 13.2.2013
 

b. Losun SF6 út í andrúmsloftið.

 
Alcoa Fjarðaál*
Landsvirkjun
kg ígildi  CO2/t ál
2012  1,02  0 kg
2011
0
0
kg
2010 2,99
0
kg
2009
0,034
0,5
kg
2008 0,067 0
kg
2007  0 0 kg

*kg ígildi af CO2 í einu tonni af áli.
Heimild: Landsvirkjun og Alcoa Fjarðaál 2009-2012.
Uppfært 14.2.2013

c. Losun CO2-ígilda vegna brennslu jarðefnaeldsneytis

  Alcoa Fjarðaál*
kg ígildi CO2/t ál
Fljótsdalsstöð**
CO2 ígildi/eq
2012
 3,8 kg/t Al
 0,011 g/kWst
2011  3,6 kg/t Al
 0,011 g/kWst
2010  3,5 kg/t Al
 0,013 g/kWst
2009  4,2 kg/t Al
 0,011 g/kWst
2008  3,5 kg/t Al
 0,008 g//kWst
2007  N/A  N/A

*CO2 gildi á móti einu tonni af áli framleiddu
**CO2 gildi á móti einni kílówattstund framleiddri


Notkun á díselolíu og bensíni í lítrum

  Fljótsdalsstöð
2012  19.700
2011
 19.766
2010  24.147
2009  18.769
2008  13.499
2007  7812

Heimild: Landsvirkjun og Alcoa Fjarðaál 2009-2012.

d. Kolefnisbinding


 Binding í gróðri
  t co2/ári
- Losun frá lónum
= Nettó binding
 CO2 ígildi/eq

 Alcoa Fjarðaál
 Fljótsdalsstöð Fljótsdalsstöð
Fljótsdalsstöð
 
2012  55  5.380 1.140
 4.186 tonn/tons
2011  42  5.380 1.140  4.187 tonn/tons
2010
 19,4  4.800 1.140
 3.594
tonn/tons

Hér er metin kolefnisbinding vegna verkefna sem Fjarðaál og Landsvirkjun standa fyrir á Íslandi, að frádreginni losun kolefnis vegna gróðurs sem hverfur undir Hálslón. Uppgræðsla Landsvirkjunar hefur farið fram á um 4.000 ha lands. Þar til nákvæm mæling á bindingu hefur farið fram er kolefnisbinding þeirrar uppgræðslu talin vera um 1 t/ha eða um 4.000 t. CO2/t á ári. Fjarðaál metur að kolefnisbinding fyrirtækisins sé 19,4 t. CO2/ári, miðað við þau tré sem fyrirtækið hefur staðið fyrir að setja niður frá árinu 2003. 

Vöktunaráætlun og markmið


Hvað er mælt?

  1. Losun koltvísýrings (CO2) og PFC við framleiðslu áls. (Áhrif: bein).
  2. Losun SF6 frá rafbúnaði í Fljótsdalsstöð og álveri. (Áhrif: bein).
  3. Losun GHL vegna bruna jarðefnaeldsneytis reiknuð út frá heildarnotkun á bensín- og dísilolíu, aðallega á farartæki og vélar.
  4. Kolefnisbinding vegna verkefna sem Fjarðaál stendur fyrir á Íslandi og Landsvirkjun stendur fyrir á Austurlandi að frádreginni losun GHL frá lónum (Áhrif: bein).

Áætlun um vöktun

  1. Heildarlosun CO2 -ígilda = CO2 notkun kerja + CO2 -ígilda (PFCs) rafskauta + CO2 notkun véla sem eyða jarðefnaeldsneyti. Upplýsingum verður safnað mánaðarlega.
    1. CO2 notkun kerja (MT) = 44/12 * nettó kolefnisnotkun (MT)
    2. CO2 -ígildi notkun rafskauta = Enn í skoðun hvernig verður vakta
    3. CO2 notkun vegna eldsneytiseyðslu. (MT) = [notkun própans (lítrar) * 1,5 kg CO2/lítrar)]/1000 (kg/MT)
  2. Gasþrýstingur (SF6) í rofabúnaði segir til um mögulegan leka og er því stöðugt vaktaður af stjórnstöð Landsnets. Við þrýstifall fær stjórnstöð viðvörun og gripið er til aðgerða til að koma í veg fyrir frekari leka og gasfyllt aftur á búnaðinn ef með þar.  Auk þess er gasáfylling á rofabúnaðinn skráð og síðan yfirfarin með árlegri viktun á birgðastöðu.
  3. Breytistuðlar eru notaðir til að umreikna magn á keyptu jarðefnaeldsneytis í CO2-ígildi.   Díselolía (lítrar) * 2,723  + bensín (lítrar) * 2,576 = kg CO2-ígildi. Upplýsingum er miðlað árlega frá Fljótsdalsstöð en mánaðarlega frá Fjarðaáli.
  4. Nákvæmari upplýsingar um bindingu kolefnis verða kynntar árið 2012. Landgræðsla ríkisins vinnur um þessar mundir að fyrstu úttektum á kolefnisbindingu í gróðri samkvæmt nýju alþjóðlegum verkferlum. Áætlað er að úttekt á landgræðslusvæðum Landsvirkjunar samkvæmt þessum nýju verkferlum verði lokið 2012. Eftir það verða mælingar gerðar reglulega á fimm ára fresti. Þangað til er áætluð losun reiknuð út frá stærð landgræðslusvæða á Austurlandi og áætluð binding samkvæmt bindistuðlum Landgræðslunnar sem er um 1,5 tonn CO2-ígilda á hektara  á ári. Uppgræðslusvæði Landsvirkjunar á Austurlandi tengdar rekstri Fljótsdalsstöðvar á árunum 2003 til 2010 eru um 4.800 ha. Fjarðaál metur að kolefnisbinding fyrirtækisins sé 19,4 t. CO2/ári, miðað við þau tré sem fyrirtækið hefur staðið fyrir að setja niður frá árinu 2003.
  5. Niðurstöður mælinga sýna að losun gróðurhúsalofttegunda frá lónum Fljótsdalsstöðvar er um 1.140 tonn CO2-ígildi á ári. Þar af frá 910 tonn frá Hálslóni, 200 tonn frá Kelduárlóni og 30 tonn frá Ufsarlón. Grjótárlón losar minna en 1 tonn á ári. Niðurstöðurnar eru byggðar á mælingum á kolefnisforða í gróðri og jarðvegi og tilraunum með losun gróðurhúsalofttegunda frá jarðvegskjörnum með sambærilegum gróðri og jarðvegi og var á lónstæðum. Mælingarnar eru unnar  af Landbúnaðarháskóla Íslands og eru þær sömu og birtar eru í loftslagbókhaldi Íslands vegna Loftslagsamnings Sameinuðu þjóðanna. Áætlað er að endurtaka mælingarnar eftir 10 ár.

Markmið

  1. 1,5 tonn CO2/tonn áls framleitt (Sjá samanburðarskýrslu um mat á umhverfisáhrifum)
    i. 0,05 rismínútur í keri á dag (=0,054 CO2 ígildi/tonn áls framleitt) þegar rekstur og ferli hafa náð stöðugleika eftir stillingar í byrjun.
  2. < 0,5 % leki á ári.
  3. Notkun á bensín og díselolíu
    i. Fljótsdalsstöð: Draga úr notkun á bensíni og díselolíu þar til lágmarks notkun herfur verið skilgreind. Þá verður nákvæmara markmið sett. Markmið fyrir verktaka á byggingartíma er ekki til staða en notkun var vöktuð og upplýsingum miðlað
    ii. Fjarðaál:Draga úr notkun á bensíni og díselolíu um 10% af því sem skilgreint verður sem grunnástand (á enn eftir að skilgreina) á 2ja ára fresti í 10 ár (samtals 50% samdráttur á áratug). Markmið á einungis við um rekstrartíma en vöktun mun einnig eiga sér stað á byggingartíma.
  4. Kolefnisbinding
    i. Fljótsdalsstöð: Kolefnisbinding jöfn eða meiri en losun GHL frá gróðri og jarðvegi sem hvarf undir lón.
    ii. Fjarðaál: Lágmark 450 tré gróðursett árlega á Íslandi fram til 2007. Markmið verður hækkað árið 2008 fyrir það sem eftir er af verkefninu.


Mögulegar viðbragðaðgerðir

Fyrirtækin hafa bein áhrif með starfsemi sinni með því að losa gróðurhúsalofttegundir. Í rekstri er leitast við að minnka vægi gróðurhúsalofttegunda eins og hægt er og einnig með mótvægisaðgerðum eins og kolefnisbindingu.

Bæði Alcoa og Landsvirkjun hafa umhverfisstefnur sem hægt er að kynna sér betur hér:

Alcoa og umhverfið

Landsvirkjun: Umhverfismál


Forsendur fyrir vali á vísi


Loftslagsbreytingar eru hnattrænt málefni sem bæði ríkisstjórnir, fyrirtæki og almennir borgarar þurfa að horfast í augu við og láta sig varða. Fjarðaál og Landsvirkjun hafa bæði á stefnuskrá sinni að halda losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) í lágmarki. Álframleiðsla er orkufrek en sú ákvörðun að nota vatnsafl í stað jarðefnaeldsneytis leiðir til þess að sú losun verður mun minni en annars hefði orðið. Engu að síður losnar töluvert af gróðurhúsalofttegundum (CO2 og PFCs) út í andrúmsloftið frá iðnaðarferlum sem eiga sér stað við álframleiðslu. Losun gróðurhúsalofttegunda vegna orkuvinnslu í Fljótsdalsstöð er aðalega vegna losunar frá lónum sem á sér stað þegar gróður og jarðvegur fer undir vatn  en einnig er viss hætta á leka á gróðurhúsalofttegundinni SF6 gasi sem notuð er í tengivirkjunum stöðvarinnar. Þá er losun vegna bruna jarðefnaeldsneyti sem notað er á bíla og tæki beggja fyritækjanna.

Árið 2007 voru sett lög nr. 65/2007 um losun gróðurhúsalofttegunda. Þar kemur fram að atvinnurekstri sem losar mikið magn koldíoxíðs á ári, er óheimilt að starfa á tímabilinu 1. jan 2008 til 31. des 2012 nema hafa aflað sér losunarheimilda eða lagt fram áætlun um hvernig hann muni afla sér losunarheimilda á tímabilinu. Alcoa Fjarðaál fellur undir þetta ákvæði og hefur verið úthlutað losunarheimildum frá Umhverfisstofnun.


Ítarefni



visir 2.13 vistferlisgreining forsíðaSkýrsla Landsvirkjunar LV-2011-086
Vistferlisgreining raforkuvinnslu með vatnsafli: Fljótsdalsstöð






Árleg losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) á hverja unna GWst í Fljótsdalsstöð er um 0,25 g CO2-ígildi/kWst þegar ekki er tekið tillit til kolefnisbindingar með landgræðslu (sjá mynd).
Þegar tekið hefur verið tillit til kolefnisbindingarinnar  verður nettó losunin neikvæð, það er að segja að Landsvirkjun hefur unnið að bindingu kolefnis umfram losun sem jafngildir um 0,8 grömmum CO2-ígilda fyrir hverja framleidda kWst af vatnsorku.



visir 2.13 co2 greining LV


Ólíkt því sem gerist í flestum öðrum löndum þá er losun GHL frá raforkuvinnslu á Íslandi tiltölulega lítil, enda er langstærstur hluti vinnslunnar frá endurnýjanlegum orkugjöfum þ.e. vatnsafli og jarðvarma. Vistferilsgreining (e. Life Cycle Assessment) sem gerð var fyrir raforkuvinnslu í Fljótsdalsstöð (2011) gefur upplýsingar um meðaltalsgildi fyrir losunar GHL fyrir framleiðslu raforku í stöðinni  yfir 100 ára tímabil. Vistferilsgreiningin er sú fyrsta sem gerð hefur verið fyrir vatnsaflsvirkjun á Íslandi og með henni fæst samanburður á umhverfisáhrifum orkuvinnslu með vatnsafli á Íslandi við vatnsorkuvinnslu annarsstaðar í heiminum  og við ýmsar aðrar tegundir orkuvinnslu. Losunin frá raforkuvinnslu í Fljótsdalsstöð er margfalt minni en frá flestum öðrum tegundum raforkuvinnslu eins og má sjá á samantekt á losun GHL frá mismunandi raforkuvinnslu á mynd hér að ofan.
        Gera verður greinarmun á árlegur kolefnisspori vatnsaflsvirkjana sem sem reiknaður er út frá árlegri notkun jarðefnaeldsneytis, losun frá lónum og bindingum með landgræðslu og kolefnisspori sem reiknað er með aðferðafræði vistferilsgreiningar.


Hið árlega kolefnisspor sem lýsir losun  og bindingu GHL (-0,8 g CO2-ígildi/kWst) sem tengist orkuvinnslu frá stöðinni eitt ákveðið starfsárið. En kolefnisspor raforkuvinnslu í Fljótsdalsstöð, reiknað með aðferðafræði vistferilsgreiningar (2,6 tonn CO2-ígildi/GWst) gefur upplýsingar um það hve mikið magn GHL losnar að meðaltali við vinnslu hverrar GWst sem framleidd er í stöðinni á 100 árum. Er þá meðtalin öll losun frá byggingu, rekstri og viðhaldi stöðvarhúss og stíflna. Því er ekki beint hægt að bera saman kolefnissporin fyrir raforkuvinnslu í Fljótsdalsstöð og kolefnisspor frá rekstri stöðvarinnar.
       Þeir aðilar sem áhuga hafa á að meta umhverfisáhrif (kolefnisspor), vegna framleiðslu á eigin vöru eða þjónustu, geta nýtt sér niðurstöður vistferilsgreiningar sem viðmið fyrir kolefnisspor raforkuvinnslu með vatnsafli á Íslandi. 
       Þá má einnig benda á að binding kolefnis á landgræðsluvæðum Fljótsdalsstöðvar eru byggðar á stærð landgræðslusvæða og áætlun um að á hvern hektara bindist árlega eitt tonn CO2-ígilda. Unnið er að rannsókna á raunbindingu á landgræðslusvæðunum og munu niðurstöður liggja fyrir fyrir árslok 2012 og þá einnig réttara mat á kolefnisbindingu  og kolefnisspor Fljótsdalsstöðvar.

Kolefnisspor Fljótsdalsstöðvar: Árleg nettó losun/binding kolefnis við rekstur stöðvarinnar

2.13-Tafla-i-itarefni---Fljotsdalsstod