2.14 Loftgæði

Vísir 2.14 - Loftgæði

Árangur


a. Losun rykagna, brennisteinsdíoxíðs (SO2), flúórs (F), og PAH efna í kg/t ál  eða í kílóum á hvert tonn áls sem er framleitt.

  2007* 2008 2009 2010  2011
Rykagnir 11,7 0,42 0,32 0,38  0,23
Brennisteinsdíoxí (SO2) 501 11,32 11,49 12,31 12,58
Flúor (F) 17 0,34 0,33 0,31  0,22
PAH PAH er ekki metið frá framleiðsluþar sem Fjarðaál er ekki með forskautasmiðju.

*Tölur fyrir 2007 er heildar magn en ekki magn á hvert framleitt tonn af áli, vegna þess að álverið var ekki komið í fullaframleiðslu árið 2007 reyndist erfitt að meta útblástur fyrir hvert tonn af áli.

Uppfært 3.2.2012


b. Styrkur rykagna, SO2, F og PAH efna á völdum vöktunarstöðvum í Reyðarfirði (μg/m3):

  Gildi í μg/m3: Gildi í töflum eru gefin upp í μg/m3.
  Svifryk
2.14 Svifrik 2011
  Brennisteinsdíoxíð
í lofti
Brennisteinn í lofti 2011
  PAH í svifrykssíum  PAH 16 í svifrikssíum 2011
   Flúor í lofti  2.14 Flúor í lofti 2011

Uppfært 16.03.12

Vöktunaráætlun og markmið


Hvað er mælt ?

  1. Losun rykagna, brennisteinsdíoxíðs (SO2), flúors (F), og PAH efna (í kg) á hvert tonn áls sem er framleitt (áhrif framkvæmda: bein).
  2. Styrkur rykagna, SO2, F og PAH efna á völdum vöktunarstöðvum í Reyðarfirði (μg/m3) – (áhrif framkvæmda: óbein).

Áætlun um vöktun

a. Stöðugar mælingar á útblástursefnum skorsteins við hvort hreinsivirki. Mælitæki skrá losun frá:

  • Skorsteini við kerskála, eftir hreinsun
  • Loftræstibúnaði í kerskálum
  • Uppsprettum
  • Ryksýnishornum í skorsteini safnað annað slagið.
  • Upplýsingum verður safnað með árlegri „significant measurement“ (EOL):
  • Loftbundinn flúor: Stöðugt
  • Flúor í ryki, PAH: stök sýni til að fylgja árlegum mælingum
  • SO2: samsetning

b. Frá mælistöðum fyrir andrúms­loft og úrkomumælum fyrir bæði regn og snjó.

  • Upplýsingum verður safnað með árlegri „significant measurement” (EOL)
  • Mælingar á SO2 og gaskenndu F gerðar jafnóðum, vikulega fyrir ryk.

Markmið

a)  Öll markmið þarf að endurskoða þegar nýtt umhverfismat verður tilbúið.

  1. Ryk (samkvæmt starfsleyfi). Meðaltal á ári af loftræstingu úr kerskálum, 1 kg fyrir hvert tonn af framleiddu áli
  2. Meðaltal á mánuði úr kerskálum: 1,3 kg fyrir hvert tonn af framleiddu áli
  3. Útblástursryk frá öðrum stöðum en kerskálum: <50 mg/Nm3
  4. Heildar flúormagn
  5. Árleg losun frá kerskálum 0,35 kg á hvert tonn af framleiddu áli
  6. Meðaltal á mánuði af útblæstri 0,8 kg fyrir hvert tonn af framleiddu áli
  7. PAH (Samanburðarskýrsla um mat á umhverfisáhrifum, 2002; Earth Tech, 2003): 0,01 kg fyrir hvert tonn af framleiddu áli
  8. SO2 (samkvæmt starfsleyfi): Verður ljóst að loknu umhverfismati

b)  Öll markmið þarf að endurskoða þegar nýtt umhverfismat verður tilbúið.

  1. Ryk: < 50mg/Nm3 (EOP)
  2. SO2: Árlegur meðalstyrkur < 20 µg/m3 (EOP)
  3. Gaskennt F: meðal 0,3 µg/m3 frá 1. april til 30. september á hverju ári. Hugsanlega 0,2 mg/m3 eftir 48 mánuði í rekstri (samkvæmt starfsleyfi).

Grunnástand


a. Losun rykagna, brennisteinsdíoxíðs (SO2), flúórs (F), og PAH efna (í kg) á hvert tonn áls sem er framleitt - upplýsingaöflun hefst við rekstur álvers. Niðurstöður úr mælingum má sjá í kaflanum um árangur.

b. Styrkur rykagna, SO2, F og PAH efna á völdum vöktunarstöðvum í Reyðarfirði (μg/m3):

Á myndunum sem hér fylgja er hægt að skoða niðurstöður úr mælingum á styrk rykagna, SO2 og flúors á völdum vöktunarstöðum í Reyðarfirði á árunum 2005 - 2008. Nýrri niðurstöður verða settar í kaflann um árangur um leið og þær eru tilbúnar.

2.14-b-Maelingar_a_svifryki_2005-2008_pix493Mælingar svifryk, 2005-2008

Smellið hér til að sjá stærri mynd.

2.14-b-Maelingar_a_brennisteinsdioxidi_2005-2008_pix488Mælingar brennisteinsdíoxíð (SO2), 2005-2008

Smellið hér til að sjá stærri mynd.

2.14-b-Maelingar_a_fluor_2005-2008_pix477Mælingar Flúor (F), 2005-2008

Smellið hér til að sjá stærri mynd.

2,14-b-Maelingar_a_PAH_2005-2008_pix497Mælingar PAH, 2005-2008

Smellið hér til að sjá stærri mynd.


Forsendur fyrir vali á vísi

Loftgæði skipta máli fyrir heilbrigði fólks. Tryggja þarf að útblástur lofttegunda frá Fjarðaáli valdi ekki loftmengun og dragi þar með úr lífsgæðum íbúanna. Umhverfisgæði eru einn þáttur sem skiptir máli fyrir sjálfbær samfélög. Útblástur frá Fjarðaáli flokkast sem bein áhrif fyrirtækisins á loftgæði í næsta nágrenni álversins.