2.1 Gæði grunnvatns og yfirborðsvatns við álver

Vísir 2.1 - Gæði grunnvatns og yfirborðsvatns við álver


Yfirborðsvatn við álverMeginhluti neysluvatns á Íslandi er ómeðhöndlað grunnvatn en um 5% er yfirborðsvatn, meðhöndlað eða ómeðhöndlað. Þar sem neysluvatn meirihluta íbúa á Íslandi er ómeðhöndlað er viðhald vatnsbóla mikilvægt frá sjónarhóli sjálfbærrar þróunar samfélaga. Stóriðja í nágrenni byggðar getur aukið hættu á mengun grunnvatns. Öll losun, hvort sem hún er í formi fastra efna, vökva eða lofttegunda, getur haft áhrif á gæði grunnvatnsins.

Árangur


visir 2.1 sýrustig í vatniMyndin hér til hliðar sýnir ársmeðaltal sýrustigs í árvatni í fjórum ám á Reyðarfirði. Hægt er að stækka myndina með því að smella á hana. Á yfirlitskortinu hér að neðan má sjá staðsetningu sýnatökustaða (W1, W2, W3 og W4).

Heimild: Alcoa Fjarðaál 2012.



vísir 2.1 flúor í árvatniMyndin hér til hliðar sýnir ársmeðaltal flúors í árvatni á Reyðarfirði frá 2004-2011. Hægt er að stækka myndina með því að smella á hana. Á yfirlitskortinu hér að neðan má sjá staðsetningu sýnatökustaða (W1, W2, W3 og W4).

Heimild: Alcoa Fjarðaál 2012 



Sofnunarstadir-fyrir-vatn-og-snjo-a-ReydarfirdiMyndin hér til hliðar er yfirlitskort yfir söfnunarstaði fyrir vatn og snjó á Reyðarfirði. Hægt er að stækka myndina með því að smella hér. Heimild Alcoa Fjarðaál 2010.

Taflan hér fyrir neðan sýnir mælingar á pH og flúor (F) í yfirborðsvatni nálægt álveri Fjarðaáls (flúor mældur í mg F/L).

2007 2008 2009 2010  2011
 pH  7,34  7,22  6,94  7,01  6,92
 Flúor (F)  0,025  0,032 0,09   0,05  0,05

 Heimild: Alcoa Fjarðaál 2009 og 2011.
 

Uppfært 16.03.12

Vöktunaráætlun og markmið


Hvað er mælt ?

a. Styrkur (mg/l) fosfórs (P), flúors (F), klórs (Cl) og SO4 í grunnvatni og yfirborðsvatni á völdum stöðum nálægt álveri og nálægt frárennsli álvers (áhrif framkvæmda: óbein).

Áætlun um vöktun

a. Jarðvegssýnum (grunnvatni) verður safnað og þau greind til að skoða styrk F, Cl, SO4 og pH (aðferðafræði við sýnatöku enn í mótun skv. A.W. Davison).

  • Yfirborðsvatni verður safnað og það greint til að skoða styrk F, SO4, Cl, þungmálma, PAH-16, basíska eiginleika og pH.
  • Sýni tekin úr yfirborðssnjó og snjóbráð sem verða greind til að skoða styrk PAH-16.


Gagna verður aflað sem hér segir:

  • Grunnvatn: Árlega 2004-2008.
  • Yfirborðsvatn: Á þriggja mánaða fresti frá 2005-2008.
  • Yfirborðssnjór og snjóbráð: Árlega 2005-2008.


Markmið
a. Markmið verður ákvarðað þegar niðurstöður úr grunnrannsóknum liggja fyrir.

Forsenda fyrir vali


Meginhluti neysluvatns á Íslandi er ómeðhöndlað grunnvatn en um 5% er yfirborðsvatn, meðhöndlað eða ómeðhöndlað. Þar sem neysluvatn meirihluta íbúa á Íslandi er ómeðhöndlað er viðhald vatnsbóla mikilvægt frá sjónarhóli sjálfbærrar þróunar samfélaga. Stóriðja í nágrenni byggðar getur aukið hættu á mengun grunnvatns. Öll losun, hvort sem hún er í formi fastra efna, vökva eða lofttegunda, getur haft áhrif á gæði grunnvatnsins.a. Mælingar á yfirborðsvatni.