2.24 Mengunarefni í dýralífi sjávar

Vísir 2.24 - Mengunarefni í dýralífi sjávar

 

Árangur

Árið 2010 fór fram rannsókn á mengunarefnum í dýralífi sjávar. Greind voru PAH 16 efni og þungmálmar í kræklingi, burstaormum og leirpípum. Sýnin voru tekin af fyrirfram skilgreindum sýnatökustöðum og niðurstöður efnagreininga bornar saman við niðurstöður Hafrannsóknunarstofnunar á grunnástandi frá árinu 2000.

Niðurstöður sýndu ekki marktæka hækkun á PAH efnum eða þungmálmum, og mörk þeirra voru í öllum tilfellum undir mörkum reglugerðar nr. 265/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdarstjórnarinnar (EB) nr. 1881/2006 um hámarksgildi fyrir tiltekin aðskotaefni í matvælum.

Starfsemi Alcoa Fjarðaráls virðist ekki hafa marktæk áhrif á hækkun PAH efna eða þungmálma í dýralífi sjávar við Reyðarfjörð. Nánari upplýsingar er að finna í skýrslu HRV frá desember 2010.

Áætlað er að næsta rannsókn fari fram árið 2014.

Mengunarefni-i-dyralifi-sjavar-skyrsla-forsida-mynd

Skýrsla HRV fyrir Alcoa Fjarðaál um Mengunarefni í dýralífi sjávar 2010.

Smellið hér til að ná í eintak.

  

 

Vöktunaráætlun og markmið


Hvað er mælt
a. Styrkur PAH efna (μg/g) og þungmálma (ppm) í lindýrum á völdum stöðum í Reyðarfirði (áhrif framkvæmda: óbein).

Áætlun um vöktun
a. Sýni verða tekin af botndýralífi (þ.á.m. lindýrum). Þeim verður safnað á skilgreindum sýnatökustöðum og kannaður styrkur PAH-16. Upplýsingum verður safnað á fimm ára fresti.

Markmið
a. Markmið verður ákvarðað þegar niðurstöður úr grunnrannsóknum liggja fyrir.


Grunnástand


2.24-skyrsla-hafro-2000-mengunaerfniUpplýsingar um grunnástand eru aðgengilegar í skýrslu Hafrannsóknarstofnunar frá árinu 2000.

Smellið hér til að fá eintak af skýrslu.


Forsendur fyrir vali


Vistkerfi sjávar nálægt Íslandsströndum er einstakt og fjölbreytt. Framleiðsla Fjarðaáls hefur í för með sér að fráveituvatn þarf að losa í vatnsfarvegi í nágrenni álversins. Fráveituvatnið gæti haft áhrif á sjávardýralíf í Reyðarfirði vegna þess að fráveituvatn gæti blandast því vatni sem fyrir er á svæðinu. Þannig gæti efnainnihald vatnsins breyst og sú breyting haft áhrif á dýralíf. Hagkerfi Austurlands byggir á nýtingu sjávarfangs og er því viðkvæmt fyrir öllum breytingum sem kunna að verða á vistkerfi sjávar.


Ítarefni

Mengunarefni-i-dyralifi-sjavar-skyrsla-forsida-myndSkýrsla HRV fyrir Alcoa Fjarðaál um mengunarefni í dýralífi sjávar. Desember 2010.

Smellið hér til að fá eintak af skýrslu.

2.24-skyrsla-hafro-2000-mengunaerfniSkýrsla Hafrannsóknarstofnunar fyrir Reyðarál 2000. Rannsóknir á straumum, umhverfisþáttum og lífríki sjávar í Reyðarfirði frá júlí-október árið 2000.

Smellið hér til að fá eintak af skýrslu.