Vísir 2.2 - Breytingar á vatnabúskap
Þegar Hálslón hefur náð yfirfallshæð, sem er 625 metrar yfir sjávarmáli, rennur vatn úr lóninu á yfirfalli niður í farveg Jökulsár á Dal. Búast má við auknu rennsli í Jökulsár á Dal í kjölfarið. Þegar vatn rennur á yfirfalli myndast fossinn Hverfandi sem er tilkomumikill foss á að líta.
Árangur
a. Vatnshæð og rennsli á mælistöðvum í ám fyrir Kárahnjúkavirkjun.
Mikilvægt er að skoða grunnástand og vöktunaráætlun vegna breytinga á vatnabúskap áður en árangur er metinn. Árssveifla vatnshæðar og rennslis er sýnd annarsvegar í Jökulsá á Dal (rennsli við Hjarðarhaga) og hinsvegar í Jökulsá í Fljótsdal - Lagarfljóti. Árlega verður niðurstöðum mælinga bætt inn á mynd.
Myndirnar hér að neðna sýna árssveiflu í rennsli og vatnshæð Jökulsá á Dal og Jökulsá í Fljótsdal á mismunandi mælistöðvum. Niðurstöður mælinga 2008-2010 eru felldar inn í grunn mælinga allt frá 1963-2006. Einnig eru sýndar niðurstöður mælinga frá sumri 2007, en það ár var byrjað að safna vatni í Hálslón og vélar teknar í notkun ein af annarri fram á vor 2008. Þetta skýrir eflaust miklar sveiflur í rennsli. Fljótsdalsveita var ekki tekin í notkun fyrr en 2009.
(Mælingar fyrir árið 2011 eru væntanlegar á vormánuðum 2012 )
Staðsetning 1: Árssveifla rennslis Jökuldá á Dal við Hjarðarhaga, vhm 110. Mælingar eru felldar á grunn mælinga 1963-2006.
| Rennsli í Jökulsá á Dal við Hjarðarhaga | ||
|---|---|---|
| |
|
|
| Árssveifla 2008-2011 (smelltu til að sjá stærri mynd) | Mæling 2007 (smelltu til að sjá stærri mynd) | |
| Felld á grunn mælinga 1963-2006 | Felld á grunn mælinga 1963-2006 |
Staðsetning 2: Árssveifla rennslis Lagarfljóts við Lagarfoss
| Rennsli Lagarfljóts við Lagarfoss |
|---|
| Árssveifla 2008-2011 |
| Fellt á grunn mælinga 1975-2006 |
Staðsetning 3: Árssveifla vatnshæðar í Lagarfjóti við Lagarfoss. Mælingar eru felldar á grunn mælinga 1977-2006.
| Vatnshæð í Lagarfljóti við Lagarfoss | ||
|---|---|---|
| |
|
|
| Árssveifla 2008-2010 (smelltu til að sjá stærri mynd) | Mæling 2007 (smelltu til að sjá stærri mynd) | |
| Felld á grunn mælinga 1977-2006 | Felld á grunn mælinga 1977-2006 |
Staðsetning 4: Árssveifla vatnshæðar í Lagarfljóti við Egilsstaði (Lagarfell). Mælingar eru felldar á grunn mælinga 1977-2006.
|
Vatnshæð í Lagarfljóti við Egilsstaði |
||
|---|---|---|
| |
|
|
| Árssveifla 2008-2010 (smelltu til að sjá stærri mynd) | Mæling 2007 (smelltu til að sjá stærri mynd) | |
| Felld á grunn mælinga 1977-2006 | Felld á grunn mælinga 1977-2006 |
Sjá má yfirlitskort af mælistöðum í kaflanum um vöktunaráætlun og markmið.
b. Grunnvatnshæð í holum
Fjögur mælisnið hafa verið staðsett til þess að mæla grunnvatnshæð í holum nálægt ám. Spönn allra tiltækra mælinga á rennsli í viðkomandi vatnsföllum og vatnshæð eru nýtt sem samanburðargrunnur við mælingar eftir virkjun. Engar niðurstöður mælinga á grunnvatnsborði verða sýndar að sinni, en reynt að gera þeim skil eftir að úrvinnslu mælinga til og með 2011 lýkur.
Vöktunaráætlun og markmið
Hvað er mælt?
a. Vatnshæð og rennsli á mælistöðum í ám (áhrif framkvæmda: óbein).
b. Grunnvatnshæð í holum (áhrif framkvæmda: óbein). Mælingar endurteknar af og til á árunum 2009 til 2011.
Áætlun um vöktun
Frá því fyrir virkjun hafa verið reknir all margir mælar til að ákvarða rennsli til virkjunar. Mælarnir nema vatnsborð á mælistað og þau gögn eru umreiknuð í rennsli með svonefndum rennslislyklum. Hluti þessara mæla eru nú reknir til að vakta breytingar á rennsli. Fjögur mælisnið hafa verið staðsett til að mæla grunnvatnsborð í holum nálægt ám. Tvö eru í Fljótsdal og tvö á Úthéraði. Í hverju mælisniði er grunnvatnsstöð og vatnshæðarmælistöð í nærliggjandi vatnsfalli með stafrænu skrásetningarkerfi sem mælir og skráir vatnshæðina á klukkustundar fresti. Árleg skýrsla er síðan gefin út fyrir hverja mælistöð. Grunnvatnsstaða er einnig mæld handvirkt í öðrum grunnvatnsholum á sniðunum með reglulegu millibili.
Myndirnar hér að neðan sýna mælistaði.
Myndin hér til hliðar sýnir staðsetningu þeirra mælistöðva á vatnasviði Jökulsár á Dal og Lagarfljóts, sem voru í rekstri fyrir virkjun og nýttir við áætlun rennslis til virkjunarinnar. Þessir sömu mælar eru enn í rekstri, að undanskildum mæli V366 í Reykjará og V205 í Kelduá við Kiðafellstungu. Mælir í Kelduá ofan Grjótár (V454) hefur verið fluttur upp fyrir Kelduárlón.
Smellið hér til að sjá stærri útgáfu af myndinni.
Myndin hér til hliðar sýnir vatnsborðsmæla í Jökulsá í Fljótsdal sem tengjast mælingum á grunnvatni á flatlendi við ána. Bláu hrigirnir tákna síritandi vatnsborðsmæla í grunnvatnsholum og þeir svörtu grunnvatnsholur þar sem handmælt er.
Smellið hér til að sjá stærri útgáfu af myndinni.

Myndin hér til hliðar sýnir vatnsborðsmæla á Úthéraði. Vatnsborðsmælar í Jökulsá á Dal og Lagarfljóti (þríhyrningar gegnumstrikaðir með blárri línu) tengjast mælingum á grunnvatnsborði á flatlendi við árnar..
Smellið hér til að sjá stærri útgáfu af myndinni.
Markmið
a. Breytingar í vatnshæð og rennsli verði ekki meiri en spáð er í reiknilíkönum.
b. Breytingar í vatnshæð verði ekki meiri en spáð er í reiknilíkönum.
Grunnástand
a. Vatnshæð og rennsli á mælistöðvum í ám fyrir Kárahnjúkavirkjun.
Mælingar á vatnshæð og rennsli á mælistöðum í ám liggja fyrir, en yfir misjafnlega langt tímabil eftir mælistöðum. Frá því að Lagarfossvirkjun tók til starfa 1975 hefur vatnsborði í Lagarfljóti verið haldið hærra sem nemur allt að um 0,5 m frá því í október og fram í mars ár hvert.
Myndir sem fylgja þessum kafla lýsa rennsli og vatnsborði eins og það var fyrir virkjun. Á hverri mynd er hæsta og lægsta rennsli/vatnsborð sem hefur mælst á hverjum tíma ásamt meðalrennsli. Bilið þar á milli er spönn rennslis (ljósgrá skygging).
Á mynd af spönn vatnsborðs í Lagarfljóti við Egilsstaði eru auk þess gefin upp líkindi á fráviki frá meðaltali. Frávik frá slíkri líkindadreifingu er besti mælikvarðinn á breytingar, en slíkri greiningu verður ekki viðkomið fyrr en virkjunin hefur verið í rekstri a.m.k. 5-10 ár.
Mynd 1: Árssveifla rennslis í Jökulsá á Dal við Hjarðarhaga 1963_2006
Hægt er að stækka myndina með því að smella á textann hér fyrir ofan.
Mynd 2: Árssveifla rennslis í Lagarfljóti við Lagarfoss 1975-2006
Hægt er að stækka myndina með því að smella á textann hér fyrir ofan.
Mynd 3: Árssveifla vatnshæðar í Lagarfljóti við Lagarfoss 1977-2006
Hægt er að stækka myndina með því að smella á textann hér fyrir ofan.
Mynd 4: Árssveifla vatnshæðar í Lagarfljóti við Egilsstaði 1977-2006
Hægt er að stækka myndina með því að smella á textann hér fyrir ofan.
b. Grunnvatnshæð í holum
Mælingar eru til á grunnvatnshæð í tveimur sniðum út frá Jökulsá í Fljótsdal og tveimur sniðum niður undir Héraðssandi, öðru við Jökulsá á Dal og hinu við Lagarfljót. Mælingar hófust haustið 2000 og voru gerðar vikulega út árið 2001 af heimamönnum. Síritandi mælar voru settir í nokkrar grunnvatnsholur 2003 og 2004. Vikulegar mælingar heimamanna voru endurteknar haustið 2005 og 2006 í þeim holum þar sem ekki er síritun. Mælingar hafa svo verið endurteknar aftur af og til á árunum 2009 til 2011.
Mynd 5: Grunnvatnshæð við Valþjófsstaðanes 2004-2007
Hægt er að stækka myndina með því að smella á textann hér fyrir ofan.
Mynd 6: Grunnvatnshæð við Bessastaðagerði 2004-2007
Hægt er að stækka myndina með því að smella á textann hér fyrir ofan.
Mynd 7: Grunnvatnshæð við Lagarfljót á Úthéraði, Hóll 2004-2007
Hægt er að stækka myndina með því að smella á textann hér fyrir ofan.
Mynd 8: Grunnvatnshæð við Jökulsá á Dal á Úthéraði, Hólmatunga 2004-2007
Hægt er að stækka myndina með því að smella á textann hér fyrir ofan.
Helstu niðurstöður
Á myndum 5-8 hér að ofan um grunnvatnsborð er sýnd árstíðarsveifla í einni borholu frá hverju mælisniði. Mælingarnar eru í heildina blanda síritandi mælinga í einstaka holum á hverju sniði og vikulegra mælinga um afmarkaðan tíma í öðrum holum á sömu sniðum. Með þessu fást upplýsingar um tengsl grunnvatnsborðs á flatlendi við rennsli í næsta vatnsfalli og við úrkomu.
-
Á flötum grónum aurum ræður vatnsborð í næsta stóra vatnsfalli mestu um grunnvatnsborð. Þetta getur átt við í a.m.k. 700-800 m frá ánni.
-
Eftir að komið er að brekkurótum er grunnvatnsborð undir meiri áhrifum af úrkomu en vatnsfallinu.
- Gert er ráð fyrir að vatnsborð og þar með grunnvatnsborð muni hækka við Jökulsá í Fljótsdal og Lagarfljót, en lækka við Jökulsá á Dal.
-
Gert var ráð fyrir að virkjunin geti valdið allt að 23 cm hækkun grunnvatns, og miðað við landslag og dýpt á grunnvatn á aurum Jökulsár í Fljótsdal mun land blotna t.d. á Valþjófsstaðanesi ef ekkert er að gert, en líklega sjaldan á Bessastaðanesi.
Forsendur fyrir vali
Með tilkomu Kárahnjúkavirkjunar verður Jökulsá á Dal veitt úr Hálslóni yfir í Jökulsá í Fljótsdal og Lagarfljót. Einnig verður veitt vatni til virkjunarinnar úr Jökulsá í Fljótsdal og frá ám á Hraunum. Þessu fylgja talsverðar breytingar á vatnabúskap, rennsli eykst sums staðar en minnkar annars staðar, það dreifist öðru vísi innan ársins, vatnsborðshæð breytist, sem aftur getur haft áhrif á grunnvatnshæð, aurburð og rof getur breyst o.s.frv.
Vegna Kárahnjúkavirkjunar mun rennsli Jökulsár í Fljótsdal og Lagarfljóts aukast verulega, eða að meðaltali um tæplega 90 m³/s. Þannig eykst meðalrennsli við Egilsstaði um tæplega helming með tilkomu virkjunarinnar.
Aukning í rennsli er talsvert misskipt innan ársins. Hún er mest við lágrennsli að vetrarlagi (um eða yfir 100 m³/s aukning), en mun minni yfir hárennslistíma sumarsins þegar virkjunin nýtir að stórum hluta vatn úr Jökulsá í Fljótsdal og af Hraunum. Aukning rennslis í flóðum er hins vegar hlutfallslega mun minni. Við óhagstæðustu aðstæður í flóðum (öll lón virkjunarinnar full) mun rennsli Jökulsár í Fljótsdal og Lagarfljóts aukast um nálægt 60 m³/s. Í stærstu mældu flóðum í Lagarfljóti (október og nóvember 2002) hefur hámarks innrennsli í Fljótið verið metið á bilinu 1650-1700m³/s. Mesta rennsli við Lagarfoss í sömu flóðum mældist hins vegar um 950m³/s. Mismunur á innrennsli í Fljótið og rennsli við Lagarfoss stafar af miðlunaráhrifum stöðuvatnsins innan við Egilsstaði. Kárahnjúkavirkjun eykur því rennslið til Lagarfljóts í flóðum um 3-4%, og eftir útjöfnun sem verður í Lagrafljóti verður aukning við Lagarfoss um 30 m3/s (fer úr um 950 í um 980 m3/s).
Að sama skapi og rennsli eykst neðst í Jökulsá í Fljótsdal og Lagarfljóti þá minnkar rennsli verulega í Jökulsá á Dal. Meðalrennsli hennar minnkar verulega mestan hluta ársins, minnst þó síðsumars og fram á haust þegar mestar líkur eru á rennsli um yfirfall Kárahnjúkastíflu. Flóð vegna jökulleysinga að sumarlagi mun ekki gæta fyrr en lónið er fullt, en það mun jafna út flóðtoppa. Dæmigerð haust-, vetrar- og vorflóð í neðri hluta árinnar minnka hins vegar tiltölulega lítið þar sem slík flóð eiga upptök sín að verulegu leyti af vatnasviðinu neðan Kárahnjúkastíflu. Það sama á við um Jökulsá í Fljótsdal ofan frárennslisskurðar Kárahnjúkavirkjunar.
Ítarefni
Niðurstöður grunnvatnsmælinga fyrir tímabilið 2000-2006 hafa verið gefnar út í skýrslu (LV-2008/033).
Smellið hér til þess að fá eintak af skýrslu.







