2.3 Rennsli fossa

Vísir 2.3 - Rennsli fossa

 

Studlafoss-toppmyndÁrið 2008 var gefin út skýrsla um áhrif Kárahnjúkavirkjunar á fossa. Þar má sjá fróðlegar upplýsingar ásamt fjölmörgum fallegum myndum af fossum sem bæði hafa horfið af sjónarviði og öðrum sem fengu að halda sér. Myndin er af Stuðlafoss í Laugará, en sú á var ekki virkjuð. 

 

 

Árangur

Ufsárlón og Jökulsárgöng voru tekin í gagnið haustið 2008. Fylling Ufsarlóns hófst 11. september 2008 og spjaldloki Jökulsárganga var opnaður 16. október 2008 og hófst þar með nýting á vatni frá Hraunasvæðinu í Fljótsdalsstöð.  Vinna við lokafrágang yfirfallsrennu Ufsarlóns fór fram sumarið 2009 og stóð fram til 10. ágúst það ár.   Fram í byrjun september sama ár var unnið að endurbótum á botnrásarskurði Ufsarlóns. Lok framkvæmda á svæðinu var síðan í september 2010.



a) Fjöldi daga með náttúrulegu rennsli í fossum

Þann 18.08.2011 var lokað fyrir rennsli um Jökulsárgöng og því náttúrulegt rennsli í Jökulsá í Fljótsdal frá þeim degi. Þann 15.10.2011 var síðan opnað aftur fyrir rennsli um Jökulsárgöng. Á línuriti hér að neðan má sjá rennsli við Hól sumarið 2011 í samanburði við meðalrennsli.

Hægt er að fylgjast með rennsli árinnar á línuriti á heimasíðu Landsvirkjunar með því að smella á tengilinn hér að neðan. Hægra megin á síðunni er hægt að smella á "Sumarrennsli Jökulsár í Fljótsdal." Skoða línurit.

Sumarrennsli Jökulsár í Fljótsdal 2011

Vísir-2.3.a-Jökulsá á Fljótsdal-rennsli-sumar-2011                              
Línuritið sýnir sumarrennsli Jökulsár í Fljótsdal á tveimur stöðum sumarið 2011. Einnig sýnir það áætlað meðalrennsli ásamt hámarks- og lágmarksrennsli frá 1950 til 2004.

  • Fjólubláa línan sýnir rennsli um yfirfall og botnrás Ufsarlón rétt ofan við Hrakstrandarfoss sem er efsti fossinn í röð fossa í Fljótsdal.
  • Rauða línan sýnir rennsli árinnar við Hól. Rennslismælirinn er ofan við Fljótsdalsstöð áður en Jökulsá í Fljótsdal sameinast útfalli aflstöðvarinnar.
  • Bláa línan sýnir áætlað meðalrennsli við Hrakstrandarfoss á árunum 1950 til 2004.
  • Blái flöturinn í bakgrunni sýnir áætlað hámarks- og lágmarksrennsli við Hrakstrandarfoss á árunum 1950 til 2004.

Í dag má helst búast við rennsli við Hrakstrandarfoss seinni hluta sumars þegar fylling Hálslóns hefur verið tryggð. Þó er ekki útilokað að vatn renni framhjá fyrri part sumars þegar leysingar eru mjög miklar. Hægt er að skoða yfirlitsmynd með staðsetningu mælistöðvar með því að smella hér.

Vöktunaráætlun og markmið



Hvað er mælt ?

a. Fjöldi daga með náttúrulegu rennsli í fossum (áhrif framkvæmda: óbein).


Áætlun um vöktun

a. Hluti af reglulegum rekstri virkjunar. Upplýsingum er safnað jafnóðum.


Markmið

a. Í meðalárum verður náttúrulegt rennsli í fossum í Jökulsá í Fljótsdal frá 10. ágúst til 1. október.

Í úrskurði umhverfisráðherra 20. desember 2001, setur ráðherra fram 20 skilyrði fyrir starfsemi Kárahnjúkavirkjunar. Skilyrði 10 segir að framkvæmdaraðili skuli nýta yfirfallsvatn á skipulegan hátt á ferðamannatíma og leitist við að ná meðalrennsli í farveg Jökulsár í Fljótsdal og Kelduár í júlí og ágúst í góðum vatnsárum. Í lakari vatnsárum skal framkvæmdaraðili leggja áherslu á að hafa rennsli á ferðamannatíma í farvegi Jökulsár í Fljótsdal og síðan í Kelduá eftir því sem yfirfallsvatn dugar til.

Grunnástand


Landsvirkjun hefur gefið út skýrslu um áhrif  Kárahnjúkavirkjunar á fossa (LV - 2008/089)  og er stuðst við hana hér þegar grunnástand er metið.

Almennt er foss skilgreindur þannig að vatnið í honum fellur lóðrétt fram af brík, sem yfirleitt er úr bergi. Í flúð rennur vatnið eftir hallandi farvegi eða stöllum sem eru það lágir að vatnið fellur ekki lóðrétt. Í skýrslunni er ekki gerður munur á foss eða flúð og  notað orðið foss um hvoru tveggja. Það er misjafnt hversu vel er búið að kanna fossa í þeim ám sem hér um ræðir.  Kelduá ásamt Innri og Ytri Sauðá eru nokkuð vel kannaðar og búið að ljósmynda alla fossir og fjölmargar flúðir uppí  ákveðna landhæð sem kemur fram í skýrslunni.

Í hinum ánum hafa fossar ekki verið taldir og skráðir með jafn ítarlegum hætti, en stuðast við ábendingar kunnugra manna. Í engri ánni hafa fossar verðið kannaðir alveg að jökulbrún. Með auðveldari aðkomu að þessum ám vegna þeirra samgöngubóta sem átt hafa sér stað á svæðinu er léttara en áður að afla upplýsinga um fossa og flúðir á þessu svæði.

Í upphaflegum virkjunaráformum Kárahnjúkavirkjunar var gert ráð fyrir að eftirfarandi ár væru virkjaðar: Jökulsá á Dal, hliðarár sem falla í Hálslón, Grjótá á Vesturöræfum, Þuríðarstaðardalsá,  Hölkná, Laugará, Bessastaðaá, Jökulsá í Fljótsdal, Hafursá, Kelduá, Grjótá á Hraunum, Innri Sauðá , Ytri Sauðá, Fellsá og Sultarranaá.

Í úrskurði umhverfisráðherra um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar var umfang Kárahnjúkavirkjunar minnkað þar sem horfið var frá því að virkja  Grjótá á Vesturöræfum, Þuríðarstaðardalsá,  Hölkná, Laugará, Bessastaðaá, Hafursá, Fellsá og Sultarranaá.
 
Í október 2008 ákvað stjórn Landsvirkjun að fresta virkjun Ytri og Innri Sauðá um óákveðinn tíma. Upplýsingar í  neðangreindri töflu eru fengnar  úr áður nefndri skýrslu (LV-2008/089). Í töflunni eru taldar allar ár sem átti að virkja samkvæmt upphaflegum virkjunaráformum. Með fjölda fossa er átt við þá fossa sem verða eða hefðu getað orðið fyrir áhrifum miðað við upphafleg virkjunaráhrif.

Árheiti Fjöldi fossa Virkjunaráform Athugasemdir
Jökulsá á Dal 1 Áin nú virkjuð Einn foss verður til við virkjun árinnar
Hliðarár sem falla í Hálslón 6 Áin nú virkjuð Fossar hverfa
Jökulsá í Fljótsdal 20 Áin nú virkjuð Fossar hærri en 2m upp að landhæð 626 m
Kelduá 33 Áin nú virkjuð Allir fossar og flúðir upp í landhæð 620 m
Grjótá á Hraunum 3 Áin nú virkjuð Myndir vantar í skýrslu
          
Innri Sauðá 5 Virkjun árinnar frestað Myndir af tveimur fossum í skýrslu
Ytri Sauðá 11 Virkjun árinnar frestað Allir fossar og flúðir upp að landhæð 691 m
       
Grjótá á Vesturöræfum 1 Úrskurður umhverfisráðherra: Áin ekki virkjuð Frekari könnun æskileg
Þuríðarstaðardalsá ? Úrskurður umhverfisráðherra: Áin ekki virkjuð Frekari könnun æskileg
Hölkná 1 Úrskurður umhverfisráðherra: Áin ekki virkjuð Frekari könnun æskileg
Laugará 2 Úrskurður umhverfisráðherra: Áin ekki virkjuð Frekari könnun æskileg
Bessastaðaá 4 Úrskurður umhverfisráðherra: Áin ekki virkjuð Frekari könnun æskileg
Hafursá 1 Úrskurður umhverfisráðherra: Áin ekki virkjuð Frekari könnun æskileg
Fellsá 2 Úrskurður umhverfisráðherra: Áin ekki virkjuð Frekari könnun æskileg
Sultarranaá 1 Úrskurður umhverfisráðherra: Áin ekki virkjuð Frekari könnun æskileg

Samkvæmt meðfylgjandi töflu hefur Kárahnjúkavirkjun  nú áhrif á að minnsta kosti  63 fossa. Sjö fossar hverfa, en einn foss verður til. Rennsli í 56 fossum minnkar stóran hluta ársins. Virkjun tveggja áa er frestað en í þeim eru að minnsta kosti 16 fossar.

Horfið hefur verið frá virkjunaráformum 7 áa. (Grjótá og Þuríðarstaðardalsá eru nöfn á sömu ánni. Efri hluti árinnar  heitir Grjótá, en neðri hlutinn hennar  heitir Þuríðarstaðardalsá). Í þessum ám eru  að minnsta kosti 12 fossar. Í ám sem átti að virkja samkvæmt upphaflegum virkjunaráformum Kárahnjúkavirkjunar eru að lágmarki 91 foss.


Forsendur fyrir vali

Í ám á áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar er fjöldi fossa sem verða fyrir áhrifum vegna virkjunarinnar. Í Jökulsá í Fljótsdal er fjöldi fossa þar sem áin fellur um 600 metra á 30 km kafla frá Eyjabökkum að Norðurdal. Má þar nefna Eyjabakkafoss, Tungufoss, Kirkjufoss, Faxa og Gjögurfossa. Á 20 km kafla frá Eyjabökkum að Kleif í Fljótsdal eru 15 fossar sem eru yfir 30 metra háir. Einnig eru fossar í Kelduá og öðrum ám á Hraunum sem vatni verður veitt frá til virkjunarinnar. Í Jökulsá á Dal eru engir fossar en hins vegar eru fossar í ám sem renna í hana, svo sem Sauðárfoss í Sauðá og Kringilsárfoss (oft nefndur Töfrafoss) í Kringilsá.

Áhrif Kárahnjúkavirkjunar á fossa eru margs konar. Sumir þeirra, eins og til dæmis Sauðárfoss og Kringilsárfoss, munu hverfa undir lón þegar Jökulsá á Dal verður stífluð. Aðrir fossar munu breytast vegna þess að rennsli í þeim minnkar vegna miðlunar á vatni. Þetta á við um flesta fossa í Jökulsá í Fljótsdal og Kelduá. Þeir fossar verða að jafnaði vatnslitlir á meðan verið er að safna í uppistöðulón. Eftir að Hálslón fyllist (fyrir miðjan ágúst í meðalári) verður rekstri virkjunarinnar hins vegar stýrt þannig að náttúrulegt rennsli verður í fossum í Jökulsá í Fljótsdal og Kelduá.

Ítarefni


Skýrsla Landsvirkjunar: LV-2008/089  Áhrif Kárahnjúkavirkjunar á fossa  (14 MB) Mynd-forsida-ahrif-Karahnjukavirkjunar-a-fossa