Eldri upplýsingar
Þann 16.7.2010 var lokað fyrir rennsli um Jökulsárgöng og því náttúrulegt rennsli í Jökulsá í Fljótsdal frá þeim degi. 21.09.2010 var síðan opnað aftur fyrir rennsli um Jökulsárgöng. Á línuriti hér að neðan má sjá sumarrennsli Jökulsár á Fjöllum á tveimur stöðum sumarið 2010 í samanburði við meðalrennsli.
Línuritið sýnir sumarrennsli Jökulsár í Fljótsdal á tveimur stöðum sumarið 2010. Einnig sýnir það áætlað meðalrennsli ásamt hámarks- og lágmarksrennsli frá 1950 til 2004.
- Fjólubláa línan sýnir rennsli um yfirfall og botnrás Ufsarlón rétt ofan við Hrakstrandarfoss sem er efsti fossinn í röð fossa í Fljótsdal.
- Rauða línan sýnir rennsli árinnar við Hól. Rennslismælirinn er ofan við Fljótsdalsstöð áður en Jökulsá í Fljótsdal sameinast útfalli aflstöðvarinnar.
- Bláa línan sýnir áætlað meðalrennsli við Hrakstrandarfoss á árunum 1950 til 2004.
- Blái flöturinn í bakgrunni sýnir áætlað hámarks- og lágmarksrennsli við Hrakstrandarfoss á árunum 1950 til 2004.
Hægt er að fylgjast með rennsli árinnar á línuriti á heimasíðu Landsvirkjunar með því að smella á tengilinn hér að neðan. Hægra megin á síðunni er hægt að smella á "Sumarrennsli Jökulsár í Fljótsdal." Skoða línurit.
