Vísir 2.8 - Frágangur náma og haugsvæða

Árangur
Búið er að ganga frá öllum námu og haugasvæðum hjá álveri Alcoa Fjarðaáls. Engin námusvæði voru opnuð sérstaklega þar sem allt efni var tekið úr lóðinni undir álverinu.¹
Frágangi námu- og haugsvæða á framkvæmdasvæði Fljótsdalsstöðvar er lokið en við frágang þeirra var leitast við að þau féllu sem best að nærliggjandi umhverfi. Þó er einni grjótnámu, sem staðsett er austan við Kelduárlón, haldið opinni vegna frekari efnisvinnslu. Við frágang svæða var fylgt tilmælum starfsmanna Umhverfisstofnunar en við mat á árangri var fyrst og fremst stuðst við sjónrænt mat. Landsvirkjun mun vakta námu- og haugsvæði áfram þó að búið sé að ganga frá og loka þessum svæðum.
Hér að neðan má sjá dæmi um vinnubúðir á meðan á framkvæmdum stóð og svo hvernig gengið var frá svæðinu. Enn fremur er vísað á skýrslu Landsvirkjunar sem hefur að geyma fjölda mynda á mismunandi stigum framkvæmda.
Heimild: Alcoa Fjarðaál og Landsvirkjun.
Uppfært 13.03.13
Forsendur fyrir vali á vísi
Umfangsmiklum framkvæmdum fylgir mikil efnistaka. Frá sjónarmiði sjálfbærrar þróunar skiptir máli að röskun á landslagi og gróðurfari verði haldið í lágmarki og efnistökusvæðum og haugsvæðum sem ekki fara undir vatn eða falla inn í mannvirki verði komið í fyrra horf eins fljótt og hægt er.
Fyllingarefni í stíflur og vegi ásamt steypuefni og jarðefni til ýmissa nota vegna framkvæmdanna er fengið úr völdum svæðum bæði með tilliti til umhverfissjónarmiða og gæða efnisins. Til að auðvelda frágang að framkvæmdum loknum verður lífrænn jarðvegur, sem fjarlægja þarf vegna framkvæmdanna fluttur og notaður annars staðar þar sem þörf er á og gróðurfar svæða endurvakið eftir því sem við á.
Jarðefni sem koma frá borun jarðganga, skurðum og greftri og ekki nýtast við framkvæmdirnar, er komið fyrir á haugsvæðum sem valin hafa verið með hliðsjón af umhverfisáhrifum. Haugsvæði og námur, sem ekki fara undir vatn, verða mótuð þannig að þau falli að umhverfinu. Lífrænum jarðvegi sem kemur af fyrirhuguðu haugsvæði verður notaður aftur síðar til að jafna yfir hauginn við endanlegan frágang hans og gróðurfar svæðisins endurvakið.
Vöktunaráætlun og markmið
Hvað er mælt?
a. Hlutfall raskaðs lands sem komið er í sambærilegt horf og fyrir framkvæmdir (áhrif framkvæmda: óbein).
Vöktunaráætlun
a. Virkjun: Á byggingartíma munu eftirlitsaðilar fara á svæðið til að fylgjast með að verktakar séu að vinna samkvæmt áætlunum. Mælingar verða gerðar ef þörf er talin á. Sjónskoðun fer fram á nokkurra mánaða fresti.
Eftir að byggingartíma lýkur verða haugsvæði skoðuð og mælingar gerðar til að athuga hvort búið sé að ganga frá þeim í réttri hæð.
Að loknum byggingartíma verður upplýsingum um framvindu gróðurs á uppgræðslusvæðum safnað á fimm ára fresti.
Álver: Úr skýrslum verkfræðinga sem skoða álverslóð. Gögn verða birt einu sinni eftir að byggingu álvers er lokið.
Markmið
a. Virkjun og álver: Ástand svæðis falli sem best að náttúru og landslagi þess.
Mögulegar viðbragðsaðgerðir
Frágangi á svæðum er lokið. Einungis er um vöktun að ræða.
Ítarefni
Skýrsla Landsvirkjunar LV-2012-011 Kárahnjúkavirkjun: Frágangur vinnusvæða
