2.9 Olíu- og efnalekar sem tengjast framkvæmdum

Vísir 2.9 - Olíu- og efnalekar

 
oliu-og-efnalekar-toppmynd



Árangur

a. Fjöldi atvika

Olíu og efnalekar hjá Alcoa Fjarðaáli og Landsvirkjun 2007-2011.

vísir 2.9 olíu og efnalekar 2011


Heimild: Alcoa Fjarðaál og Landsvirkjun, 2009 - 2012.
Síðast uppfært 2.2.2012


Vöktunaráætlun og markmið

Hvað er mælt ?

a. Fjölda atvika á ári með lekum yfir 20 lítra og lekum yfir 2000 lítra bæði á landi (virkjun og álver) og frá flutningaskipum sem eru við festar í höfn Fjarðabyggðar. (áhrif framkvæmda: bein).

Áætlun um vöktun

a.  Skráning atvika

  • Fljótsdalsstöð: Stöðvarstjóri sér um að hvert atvik er skráð.
  • Fjarðaál: Umhverfis-, öryggis- og heilsuteymi sér um að hvert atvik er skráð.


Markmið

a. Fljótsdalsstöð og Fjarðaál:

  • 0 lekar yfir 20 lítrar
  • 0 lekar yfir 2.000 lítrar

Forsendur fyrir vali


Olíu- og efnalekar geta valdið skemmdum á vistkerfum. Varúðarráðstafanir til að koma í veg fyrir olíu- og efnaleka á vinnusvæðum og þar sem skip liggja við festar eru mikilvægar til að vernda vistkerfi fyrir hugsanlegum skaða. Þetta er ekki síst mikilvægt í því ljósi að heilbrigði vistkerfis sjávar skiptir miklu máli fyrir atvinnulíf á Austurlandi.