Forsaga
Þann 15. mars 2003 skrifuðu ríkisstjórn Íslands, Landsvirkjun, Alcoa og sveitarfélagið Fjarðabyggð undir samning þar sem Landsvirkjun skuldbindur sig til að reisa Kárahnjúkavirkjun og Alcoa sér um byggingu og rekstur álversins Fjarðaáls í Reyðarfirði. Þegar talað er um „framkvæmdirnar“ í þessu sjálfbærniverkefni er verið að vísa til þessara framkvæmda, þ.e. virkjunar og álvers, bæði á byggingar- og rekstrartíma.
Framkvæmdir við virkjun, álver og flutningslínur eru samanlagt stærstu framkvæmdir Íslandssögunnar, hvort sem litið er til fjárfestinga innan einkageirans eða hins opinbera. Kostnaður vegna byggingar álvers og virkjunar mun væntanlega verða í kringum 200 milljarðar íslenskra króna. Eins og við er að búast þegar ráðist er í svo umfangsmiklar framkvæmdir hafa þær hlotið mikla athygli og bæði opinberir aðilar og innlendir sem erlendir hagsmunaaðliar hafa fylgst náið með framvindu mála. Áhrif framkvæmdanna á efnahag, félagslega þætti og umhverfið verða talsverð og fela bæði í sér tækifæri og ýmis álitamál.
Í niðurstöðum mats á umhverfisáhrifum er bent á jákvæð áhrif á samfélag og efnahag. Áhrif framkvæmdanna á umhverfið eru eru dregin fram og bent á hvernig hægt sé að draga úr neikvæðum áhrifum með sérstökum mótvægisaðgerðum. Þessum mótvægisaðgerðum eru gerð skil í úrskurðum ráðherra sem leyfisveiting stjórnvalda byggir á. Öllum tilskildum leyfum fyrir framkvæmdirnar hefur verið úthlutað. Engu að síður eru margir áhyggjufullir vegna framkvæmdanna og hugsanlegra neikvæðra áhrifa sem þær gætu haft á umhverfi, efnahag og ýmsa félagslega þætti.
Alcoa hefur gefið út opinbera yfirlýsingu þess efnis að stefnt sé að því að hanna Fjarðaál þannig að mengun frá álverinu verði með því minnsta sem þekkist í heiminum. Landsvirkjun hefur þá stefnu að hanna virkjun sem stenst allan alþjóðlegan samanburð og hafi sem minnst áhrif á umhverfið. Auk skuldbindingar fyrirtækjanna um að lágmarka áhrif framkvæmdanna á umhverfið, vilja þau einnig stuðla að því að efnahagslegur og félagslegur ávinningur Austurlands verði sem mestur. Fyrirtækin hafa tekið höndum saman í þessu sjálfbærniverkefni til að auðvelda sér að standa við þær skuldbindingar.
