Ráðgjafar

Ráðgjafar


Ráðnir voru bæði íslenskir og erlendir ráðgjafar til þess að aðstoða Landsvirkjun og Alcoa við undirbúning og framkvæmd hópverkefnisins. Kröfur til ráðgjafa voru:

•Þekking og reynsla af vinnu við sjálfbæra þróun og greiningu alþjóðlegra vísa.
•Þekking á sjálfbærnimálum á Íslandi.
•Reynsla í stjórnun samráðsfunda.


Eftir viðræður við fyrirtæki sem til greina komu var ákveðið að ráða alþjóðlega fyrirtækið ERM sem hefur mikla reynslu af alþjóðlegum vettvangi, íslenska fyrirtækið ALTA og sjálfstætt starfandi ráðgjafa, Auði H. Ingólfsdóttur. Hér að neðan má sjá töflu með nöfnum ráðgjafa ásamt fyrirtækinu sem þeir starfa fyrir.  Nokkrar breytingar hafa orðið á ráðgjöfum eftir að framkvæmdafasi sjálfbærniverkefnisins hófst. Í dag fer Þekkingarsetur Þingeyinga með faglega ráðgjöf og verkefnastjórn í Austurlandsverkefninu.

Listi yfir ráðgjafa sem komu að starfi í áfanga eitt, tvö og þrjú:

 Nafn  Ráðgjafafyrirtæki
 Árni Geirsson ALTA - ráðgjafafyrirtæki
 Hildur Kristjánsdóttir  ALTA - ráðgjafafyrirtæki
 Sigurborg Kr. Hannesdóttir  ALTA - ráðgjafafyrirtæki
 David Blaha  ERM - Environmental Resource Management
 Alistair Fulton  ERM - Environmental Resource Management
 Julia Tims  ERM - Environmental Resource Management
 Jonathan Samuel  ERM - Environmental Resource Management
 Auður H. Ingólfsdóttir  UMÍS - Umhverfisráðgjöf Íslands ehf