Verklag
Verklag í Sjálfbærniverkefninu á Austurlandi
Alcoa og Landsvirkjun hafa þróað verklag til að meta áhrif framkvæmdanna á sjálfbæra þróun á Austurlandi. Á myndinni hér að neðan má skoða myndræna framsetningu á verklaginu.
Stefnumótun Landsvirkjunar og Alcoa varðandi umhverfi, samfélag og efnahagsþróun er órjúfanlegur hluti af þessu verklagi, sem og samráð við hagsmunaaðila í öllum áföngum verkefnisins. Verkefninu var skipt upp í fjóra áfanga og hver þeirra skiptist í nokkra verkþætti.
