Annar áfangi - Vísar og grunnástand
Öðrum áfanga lauk vorið 2005 með útgáfu á skýrslu, Áfangaskýrslu I/II: Vísar og grunnástand. Þessi áfangi fól í sér þróun tölulegra vísa og mælikvarða og mat á því hvernig virkjun og álver gætu haft áhrif á þessa vísa. Tiltækum upplýsingum um grunnástand var safnað saman og nýrra gagna aflað. Þátttakendur í samráðshópi fengu drög að skýrslunni til umsagnar og haldin var þriðji fundur hópsins þar sem efni skýrslunnar var yfirfarið. Nánari útlistun á þróun vísa og mælieininga er að finna hér. Við kynningu verkefnisins var gert ráð fyrir að hér skyldi vinnu samráðshópsins lokið. Það væri hlutverk fyrirtækjanna sjálfra að setja markmið og vinna framkvæmdaáætlun. Á síðasta fundi hópsins kom fram hjá fundarmönnum ósk um áframhaldandi þátttöku í verkefninu og ráðgjöf við setningu markmiða.
