Fjórði áfangi

Fjórði áfangi - Framkvæmd

Í upphafi 4. áfanga var vöktunarkerfi komið á og byrjað að skrá upplýsingar um mælingar. Þá var unnið að frekari öflun upplýsinga um grunnástand en þeirri vinnu er enn ekki lokið. Vísar og mælikvarðar voru grannskoðaðir og í sumum tilfellum höfðu forsendur breyst eða mælikvarði reyndist ónothæfur. Í nokkrum tilvikum var því nauðsynlegt að fella niður, breyta eða bæta við vísi eða mælikvarða. Allar upplýsingar um breytingar á mælikvörðum og vísum má sjá hér.

Heimasíðan www.sjalfbaerni.is er einnig hluti af 4. áfanga en á henni eru upplýsingar um mælingar og þróun einstakra vísa birtar. Þessar upplýsingar verða uppfærðar árlega svo lengi sem það er áhugavert og mögulegt. Viðbrögð vegna hugsanlegra breytinga sem mælingar leiða í ljós verða einnig kynnt hér á þessari heimasíðu.