Fyrsti áfangi
Fyrsti áfangi - Samhengi og áhrif
Í þessum áfanga var grunnur verkefnisins lagður með því að skilgreina stefnumið, virkja hagsmunaaðila til samstarfs og greina helstu málefni, bæði þau sem fela í sér tækifæri og áhættu. Áfanganum lauk síðla árs 2004.
- Markmið verkefnis voru skilgreind (sjá nánar) og verklagið aðlagað þessu tiltekna verkefni.
- Hagsmunaaðilar voru skilgreindir og virkjaðir með því að kalla saman fulltrúa þeirra í sérstakan samráðshóp vorið 2004 (sjá yfirlit yfir starf hópsins og lista yfir þátttakendur í hópnum). Við val á fulltrúum í samráðshóp reyndu fyrirtækin að leita eftir jafnvægi í viðhorfum (t.d. til umhverfisþátta, félagslegra þátta og efnahagslegra þátta); ná landfræðilegri dreifingu (fá fulltrúa bæði frá Austurlandi og annars staðar frá); fá fulltrúa bæði frá aðilum sem studdu framkvæmdir og voru þeim mótfallnir; og að í hópnum væri blanda af fólki frá opinbera geiranum, frjálsum félagasamtökum, sveitarfélögum og úr viðskiptalífinu. Hlutverk samráðshópsins var að taka þátt í þróun sjálfbærnivísa og hugsanlegra mælikvarða til að mæla áhrif starfsemi fyrirtækjanna á Austurlandi.
- Fyrirtækin héldu tvo fundi með samráðshópnum þar sem áhersla var lögð á að greina helstu málefni og ræða um vísa og mælikvarða.
