Álver á Bakka

Álver á Bakka

Áætlað er að framleiðslugeta álversins verði allt að 346.000 tonn á ári og álverið hugsanlega byggt í áföngum. Áfangaskipting liggur ekki fyrir á þessu stigi en hún mun ráðast af framboði á orku frá jarðhitasvæðum í Þingeyjarsýslu eða af landsnetinu og afhendingartíma orkunnar. Helstu mannvirki álvers eru kerskálar, hreinsivirki, steypuskáli, skautsmiðja, súrálssíló og aðrar hráefnisgeymslur.