Flutningslínur
Áformað er að reisa 220 kV flutningslínur frá Kröflu sem munu liggja samsíða norðan Hlíðarfjalls (Kröflulínur 4 og 5) að hugsanlegu tengivirki á Hólasandi. Frá Hólasandi fara línurnar tvær aðskildar leiðir til að auka afhendingaröryggi og til að draga úr sjónrænum áhrifum við Þeistareyki og nágrenni. Önnur línan fer norður með Kvíhólafjöllum að Þeistareykjum (Hólasandslína 2). Frá Þeistareykjum er farið yfir Jónsnípuskarð, síðan vestan Höskuldsvatns og austan Húsavíkurfjalls að Bakka (Þeistareykjalína 1). Hin línan fer áfram í norðvestur frá Hólasandi og vestan Lambafjalla til norðurs að Bakka (Hólasandslína 1) og kemur að Þeistareykjalínu 1vestan Höskuldsvatns. Leiðirnar tvær fyrir línurnar frá Kröfluvirkjun að Bakka við Húsavík eru um 60 km langar hvor um sig.
Gert er ráð fyrir að tengja Bjarnarflagsvirkjun við flutningskerfið með því að leggja 132 kV jarðstreng (E2) frá Bjarnarflagi að Kröflu. Í Svæðisskipulagi fyrir háhitasvæði í Þingeyjarsýslum 2007-20251 var byggt á niðurstöðu umhverfismats og í stefnumörkun svæðisskipulagsáætlunarinnar var valinn sá kostur að afmarka landsvæði fyrir flutningslínur eftir valkosti A1a (um Þeistareyki) + B1 (vestan Lambafjalla). Í Svæðisskipulaginu kemur m.a. fram:
,,Stefnumörkunin er talin samræmast stefnu sveitarfélaga ogumhverfisviðmiða með því að:
• skerða ekki landslagsheild austan Gæsafjalla,
• aukið afhendingaröryggi fáist með aðskildum leiðum,
• lágmarka umfang flutningslína um Þeistareykjasvæðið,
• samþætta flutningslínur og veg frá Hólasandi að Þeistareykjum
• A1a (um Þeistareyki) gefur betur kost á að samþætta flutningsleið frá Gjástykki.
Með því að fara með flutningslínu vestan Lambafjalla, munu áhrif dreifast á fleiri
landsvæði. Það var talið ásættanlegt þar sem það dregur úr umfangi mannvirkja við
Þeistareyki sem hafa að geyma náttúru- og menningarminjar og stuðlar að
nauðsynlegu afhendingaröryggi. “
Einnig er það niðurstaða umhverfismats Svæðisskipulagsins að ef tvöföld flutningslína væri um Þeistareyki og einnig yrði virkjað í Gjástykki yrðu samlegðaráhrif á náttúrufar, náttúruvernd og menningaminjar á Þeistareykjum
veruleg þar sem þreföld flutningsleið raforku yrði um svæðið.
