Krafla
Kröfluvirkjun II
Jarðhitasvæðið í Kröflu er talið vera eitt af þremur stærstu jarðhitasvæðunum á Norðurlandi eystra. Kröflustöð I hefur verið starfrækt á svæðinu síðan 1978 og er uppsett afl 60 MWe. Áætlað er að rafmagnsframleiðsla geti numið allt að 150 MWe í Kröfluvirkjun II. Til að ná því markmiði er reiknað með að bora þurfi um 30 vinnsluholur á svæðinu.
