Þeystareykir

Þeistareykjavirkjun

Þeistareykir eru um 25 km suðaustan við Húsavík, sjá myndir 2.1 og 2.2. Frá árinu 2001 hafa verið boraðar 6 rannsóknarholur á Þeistareykjum til að kanna jarðhitavirkni. Niðurstöður þeirra borana hafa staðfest fyrri vísbendingar um að nýta megi jarðhita á svæðinu til rafmagnsframleiðslu sem geti numið allt að 200 MWe. Til að ná því markmiði er reiknað með að bora þurfi um 40 vinnsluholur á svæðinu.