Áfangi 4

Áfangi 4 – Innleiðing og framkvæmd

Reynslan af sambærilegu verkefni á Austurlandi sýndi að ákveðin stöðnun varð eftir að vísarnir voru skilgreindir þangað til að farið var að safna saman upplýsingum og kynna niðurstöður.  Stafaði það helst af því að fyrirtækin voru með hugann við að byggja og hefja starfsemi á Austurlandi, auk þess sem upplýsingar um grunnástand vísa var á tíðum erfitt að nálgast.  Í þessum áfanga verður því sérstök áhersla lögð á framkvæmdaráætlun og að ferla utanumhald um sjálfbærnivísanna auk innleiðingu þeirra hjá eigendum til að tryggja að framkvæmdin verði í eðlilegu framhaldi af skilgreiningu vísanna.

Efnisvalmynd