Um Sjálfbærni
Sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar var sett á laggirnar árið 2004 í upphafi framkvæmda við byggingu álvers Fjarðaáls og Kárahnjúkavirkjunar.
Hvorugt fyrirtækjanna hafði forskrift að því hvernig staðið skyldi að þessu verkefni.
Fljótlega kom í ljós að verkefnið var í raun frumkvöðlastarf, ekki bara hér á landi heldur einnig á heimsvísu. Ekki er vitað til að slík verkefni hafi farið af stað í upphafi ferils þar sem framkvæmdir eru að hefjast.
Ráðnir voru íslenskir og erlendir ráðgjafar til að aðstoða fyrirtækin við verkefnið.
Markmið verkefnisins er að styðja hugmyndafræði um sjálfbæra þróun og taka tillit til umhverfis, efnahags og félagslegra þátta.
