Orðskýringar

Framkvæmdir:

Þær framkvæmdir sem eru til skoðunar í sjálfbærniverkefninu, þ.e.a.s. Kárahnjúkavirkjun, Fjarðaál og Fljótsdalslínur 3 og 4.

Markmið:

Töluleg markmið eða viðmið sem sett verða fyrir einstaka vísa í áfanga 3. Slík markmið geta verið tölusett eða fela í sér markmið um þróun í ákveðna átt og eru einnig yfirleitt tímasett.

Mælikvarðar:

Mælingar notaðar til að fylgjast með breytingum á vísum.

Samráðshópur:

Hópur fólks sem eru fulltrúar hinna ýmsu hagmunaaðila og hefur samþykkt að taka þátt í sjálfbærniverkefni.

Sjálfbærnistefnumið:

Almenn stefnumið sem Alcoa og Landsvirkjun hafa sett sér fyrir þetta verkefni og byggja á alþjóðlega viðurkenndum viðmiðum um sjálfbæra þróun. Þessi stefnumið leggja grunninn að sjálfbærniverkefninu.

Sjálfbærniverkefni:

Vinna Alcoa og Landsvirkjunar við að greina málefni og skilgreina vísa til að fylgjast með árangri við að fylgja eftir stefnumiðum fyrirtækjanna við framkvæmdirnar.

Sjálfbær þróun - verklag:

Ferli sem er hannað utan um sjálfbærniverkefnið þar sem skilgreint er verklag við að þróa vísa, setja markmið, mæla árangur og miðla niðurstöðum úr verkefni.

Upplýsingar um grunnástand:

Upphaflegt, þekkt gildi eða útreikningar sem notaðir eru til að bera saman við síðari gildi. Upplýsingar um grunnástand gefa stöðumynd fyrir vísi sem er skráð áður en áhrifa framkvæmda fer að gæta. Þó ástandið breytist síðar er upplýsingum um upphaflegt ástand haldið til haga svo hægt sé að nota þær sem viðmið.

Verkefnastjórn:

Starfsfólk Alcoa og Landsvirkjunar sem vinnur að sjálfbærniverkefni ásamt ráðgjöfum sem fyrirtækin hafa ráðið til að vinna að verkefninu.

Vísir:

Gildi sem hægt er að skoða eitt og sér eða í samhengi við aðra vísa, til að meta hvort áhrif framkvæmda séu í samræmi við skilgreind stefnumið um sjálfbærni.