Sjálfbærni á Íslandi
Velferð til framtíðar er dæmi um stefnumörkun á landvísu og er skýrsla íslensku ríkisstjórnarinnar um sjálfbæra þróun á Íslandi til ársins 2020.
Sjálfbær þróun getur náð til staðbundinna áhrifa, áhrifa á landsvísu eða alþjóðlegra áhrifa. Dæmi um stefnumörkun á landsvísu er skýrsla íslensku ríkisstjórnarinnar um sjálfbæra þróun til ársins 2020 undir heitinu Velferð til framtíðar. Hugtakið „velferð“ vísar í þessu samhengi ekki einungis til efnahagslegra gæða, heldur víðtækari lífsgæða sem einnig fela í sér ýmis félagsleg gæði og umhverfisgæði. Í stefnumörkuninni eru skilgreindir vísar til að meta árangur við að ná þeim markmiðum um sjálfbæra þróun sem eru sett fram í stefnumörkuninni.
Einnig hefur komið út aukarit um Velferð til framtíðar, áherslur 2010-2013. Hægt er að skoða ritið með því að smella hér.
