Hvað er vísir
Vísir er íslensk þýðing á enska orðinu "indicator." Vísir er einhverskonar mælikvarði eða gildi sem segir til um þróun eða breytingar.
-
Vísir er skilgreind stærð sem notuð er til þess að vakta breytingar yfir ákveðið tímabil. Sem dæmi má nefna gæti vísir sagt til um breytingar á fólksfjölda á ákveðnu svæði yfir ákveðið tímabil.
-
Vísar hjálpa til við að gera flókin ferli sem erfitt er að greina, sýnilegri og skiljanlegri.
-
Vísir þarf að vera byggður á vísindalegum grunni og næmur fyrir breytingum.
-
Vísir segir ekki til um hvort þróun í ákveðna átt sé góð eða slæm, rétt eða röng, heldur segir hann til um hverjar breytingarnar eru. Það er síðan okkar mannanna að ákveða hvort við erum sátt við þróunina eða hvort við viljum fara í einhverjar aðgerðir til þess að bæta eða laga þá þróun sem átt hefur sér stað.
-
Góður vísir getur gefið vísbendingu um að vandamál sé til staðar áður en það verður óviðráðanlegt og getur hjálpað til við að greiningu á úrlausn vandamálsins.
- Vísar eru notaðir til þess að miðla upplýsingum um þróun á skýran og einfaldan hátt.
-
Vísar um sjálfbæra þróun eiga að endurspegla hinar þrjár stoðir sjálfbærrar þróunar, þ.e. samfélag, umhverfi og efnahag.
-
Til eru gagnagrunnar um sjálfbærnivísa, meðal annars hjá Sameinuðu þjóðunum og Norðurlöndunum. (setja link).
