Áhrif og ábyrgð
Áhrif og ábyrgð
Sjálfbærni - samnefnari fyrir samfélagslega ábyrgð
Notkun hugtakanna sjálfbær þróun og sjálfbærni í þessum verkefnum felur ekki í sér yfirlýsingu um að framkvæmdir og rekstur fyrirtækjanna á Austur- og Norðurlandi séu eða verði sjálfbærar. Í þeim felst vilji fyrirtækjanna að fylgja þeirri stefnu að framkvæmdir og rekstur falli sem best að hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Fyrirtækin hafa mótað stefnumið í samræmi við hugmyndafræði Sameinuðu þjóðanna á sviði sjálfbærrar þróunar.
Stefnumið fyrirtækjanna varðandi sjálfbæra þróun:
- Virðum og verndum fólk – Hlustum á og virðum skoðanir þeirra sem vinna fyrir fyrirtækin og búa í þeim samfélögum þar sem fyrirtækin starfa og vinnum að því að bæta almenna líðan fólks.
- Höfum uppbyggileg áhrif á samfélagið – Leggjum okkar af mörkum til að auka lífsgæði, byggja upp hæfni, þekkingu og reynslu á Íslandi en virðum um leið mikilvægi og fjölbreytni íslenskrar menningar og menningararfs.
- Stuðlum að langtíma efnahagslegum ábata – Skilum bæði Austurlandi og íslensku þjóðinni efnahagslegum ábata. Starfsemi fyrirtækjanna er ætlað að örva hagvöxt, skapa verðmæti fyrir samfélagið, skila arði til hluthafa og stuðla með þeim hætti að heilbrigðu efnahagskerfi.
- Nýtum auðlindir með hagkvæmum hætti og notum hreinni framleiðslutækni – Nýtum náttúruauðlindir með skynsamlegum hætti og spornum við neikvæðum umhverfisáhrifum til hagsbóta fyrir alla. Unnið verður að þessu markmiði með því að hvetja til ábyrgðar við hönnun, notkun, endurvinnslu og urðun.
- Viðhöldum líffræðilegri fjölbreytni og heilbrigði vistkerfa – Viðhöldum líffræðilegri fjölbreytni og heilbrigði vistkerfa í því umhverfi sem við störfum í.
- Tökum tillit til þarfa núlifandi og komandi kynslóða – Horfum til framtíðar þegar við metum áhrif framkvæmda og viðhöldum náinni samvinnu við sveitarfélög og ríkisstjórn til að uppfylla þarfir samtímans án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða.
- Hvetjum til samstarfs við hagsmunaaðila – Vinnum með fólki í viðkomandi samfélagi, hjá fyrirtækjunum, viðskiptavinum og hluthöfum, til að finna lausnir sem gagnast öllum aðilum. Veitum samstarfsaðilum reglulega upplýsingar um mælingar á þeim þáttum sem notaðir verða sem viðmið til að meta sjálfbærni í starfsemi fyrirtækjanna á svæðinu.
- Sýnum ábyrgð og góða stjórnun – Sýnum gott viðskiptasiðferði og tökum ábyrgð á öllum gjörðum fyrirtækjanna. Vinnum sífellt að því að bæta frammistöðu og taka tillit til umhverfisviðmiða, félagslegra þátta og efnahagslegra þátta í allri ákvarðanatöku.
hafa verið þróaðir með það að leiðarljósi að mæla og meta hvernig fyrirtækjunum gengur að uppfylla ofangreind stefnumið.
