Hvernig byrjaði þetta?
Sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar var komið á laggirnar árið 2004 í upphafi framkvæmda við byggingu álvers Fjarðaáls og Kárahnjúkavirkjunar. Hvorugt fyrirtækjanna hafði forskrift að því hvernig staðið skyldi að þessu verkefni og fljótlega kom í ljós að verkefnið var í raun frumkvöðlastarf, ekki bara hér á landi heldur einnig á heimsvísu. Ráðnir voru íslenskir og erlendir ráðgjafar til að aðstoða fyrirtækin við verkefnið.
Fyrsta sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar var komið á laggirnar árið 2004 í upphafi framkvæmda við byggingu álvers Fjarðaáls og Kárahnjúkavirkjunar. Markmið verkefnisins var að styðja hugmyndafræði um sjálfbæra þróun og taka tillit til umhverfis, efnahags og félagslegra þátta.
Hvorugt fyrirtækjanna hafði forskrift að því hvernig staðið skyldi að þessu verkefni. Fljótlega kom í ljós að verkefnið var í raun frumkvöðlastarf, ekki bara hér á landi heldur einnig á heimsvísu. Ekki er vitað til að slík verkefni hafi farið af stað í upphafi ferils þar sem framkvæmdir eru að hefjast. Ráðnir voru íslenskir og erlendir ráðgjafar til aðstoðar við verkefnið. Fyrirtækin fengu jafnframt til liðs við sig fulltrúa ýmissa hópa, bæði með og á móti framkvæmdunum, og myndaður var samráðshópur sem vann að verkefnin.
Friðrik: „Af þessu verkefni má draga lærdóm til framtíðar“
„Það er ekki ætlunin með þessu verkefni að sannfæra neinn heldur útbúa mælikvarða á áhrif framkvæmdanna þannig að við töluðum sama tungumál þegar við förum að meta hvort áhrifin eru góð eða slæm,” sagði Friðrik Sophusson þáverandi forstjóri Landsvirkjunar. „Það er afar mikilvægt að allar upplýsingar séu uppá borðinu. Af þessu verkefni má draga lærdóm til framtíðar og bæta vinnubrögðin í nýjum verkefnum. Sjálfbærniverkefnið hefur vakið mikla athygli bæði hér og erlendis og hefur alls staðar fallið í góðan jarðveg.“
Tómas: „Sjálfbærni er samnefnari fyrir samfélagslega ábyrgð fyrirtækja“
Tómas Már Sigurðsson forstjóri Alcoa Fjarðaáls tók þátt í starfi samráðshópsins. „Það skapaðist mjög góð stemmning í hópnum og saman náðum við að búa til fjöldann allan af mælikvörðum til að meta áhrif framkvæmdanna á umhverfi og samfélag,“ sagði hann. „Þetta var gríðarlega mikilvægt fyrir fyrirtækið og við mótuðum stefnuna til dæmis hvað varðar ráðningar, aldursdreifingu , kynjahlutfall og innkaup út frá þessu verkefni. Það varð einnig grundvöllur að öllu okkar starfi í samfélaginu, enda er sjálfbærni samnefnari fyrir samfélagslega ábyrgð fyrirtækja.“
