Sjálfbærniverkefnið á Austurlandi
Sjálfbærniverkefni Alcoa og Landsvirkjunar á Austurlandi hófst vorið 2004 með því að "Alcoa-menn" bönkuðu upp á hjá Landsvirkjun og vildu fá fyrirtækið með í samstarfsverkefni um sjálfbæra þróun samhliða framkvæmdum á Austurlandi. Verkefnið var nokkuð óljóst en hugmyndin var góð. Ákveðið var að láta slag standa og sjá hvert það mundi leiða. Fljótlega kom í ljóst að verkefnið er í raun frumkvöðlastarf, ekki bara hér á landi heldur líka á heimsvísu. Ekki er vitað til að slík vinna hafi farið af stað, í upphafi ferils þar sem framkvæmdir eru að hefjast.
Þessi orð skrifaði Ragnheiður Ólafsdóttir, umhverfisstjóri Landsvirkjunar fyrir nokkrum árum þegar hún var að kynna verkefnið. Með því að smella hér getur þú lesið kynningu hennar sem gefur góða yfirsýn yfir hugmyndafræði, þróun og framkvæmd verkefnisins frá upphafi.
